131. löggjafarþing — 88. fundur,  14. mars 2005.

Málefni Ríkisútvarpsins.

[15:09]

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Stjórnarandstaðan á Alþingi er sammála um mikilvægi þess að fram fari ítarleg umræða um málefni Ríkisútvarpsins enda má heita að neyðarástand ríki á þeirri stofnun. Það er dapurlegt til þess að vita að stjórnarmeirihlutinn á Alþingi treystir sér ekki til að taka ítarlega umræðu um málið og að við verðum að binda okkur við hálfa klukkustund.

Tvær ástæður lágu að baki þeirri miklu umræðu sem fram fór í þjóðfélaginu um málefni Ríkisútvarpsins þar til sú þriðja kom til sögunnar, þ.e. fréttastjóramálið, hin makalausa valdníðsla að ganga þvert á fagleg og eðlileg vinnubrögð við ráðningu fréttastjóra og þess í stað troða í starfið einstaklingi sem lagsmenn forsætisráðherra töldu sig vera í kallfæri við. Þetta skrifast á ábyrgð stjórnarflokkanna, sérstaklega Framsóknarflokksins í þessu tiltekna máli, Framsóknarflokksins sem beitir fulltrúum sínum í útvarpsráði í hagsmunagæslu fyrir Framsóknarflokkinn. Þessi vinnubrögð eru tilræði við Ríkisútvarpið auk þess sem nagað er í stoðir lýðræðisins.

Enda þótt hin almenna regla eigi að vera sú að hinu pólitíska valdi sé ekki beitt í Ríkisútvarpinu er sú tenging sem er á milli Alþingis og framkvæmdarvaldsins annars vegar og Ríkisútvarpsins, útvarps í eigu allra landsmanna, hins vegar til þess fallin að hafa áhrif ef um það er sátt og markmið manna að laga það sem úrskeiðis hefur farið. Það er sitthvað að beita áhrifum sínum sér til hagsbóta og annað að koma í veg fyrir misbeitingu valds. Nú er það menntamálaráðherra að beita sér í málinu og lýsa því yfir að á Alþingi sé um það þverpólitísk samstaða að útvarpsstjóri endurskoði fyrri ákvörðun. Ef hæstv. menntamálaráðherra heykist á þessu er hún að bregðast trausti og er að fullu samábyrg spunamönnum Halldórs Ásgrímssonar, hæstv. forsætisráðherra, en svo eru nefndir áróðursfulltrúar hans sem starfa á kostnað framsóknarmanna og íslenskra skattborgara.

Ég nefndi tvær aðrar ástæður fyrir umræðunni um RÚV og ég ætla að víkja að þeim áður en ég kem aftur að fréttastjóramálinu. Í fyrsta lagi er það fjárhagsvandi Ríkisútvarpsins. Skyldu menn almennt gera sér grein fyrir því að Ríkisútvarpið hefur til ráðstöfunar 15–20% minna fjármagn að raungildi en fyrir tíu árum. Stofnunin hefur brugðist við með þeim hætti að fækka í starfsliði og hefur því verið fækkað um 15% síðan 1996 eða um tæplega 60 manns og fækkunin er ekki í toppinn, hún er í grunninn.

Önnur ástæða fyrir umræðu um RÚV er fyrirhugað frumvarp ríkisstjórnarinnar. Vitað er um vilja Sjálfstæðisflokksins, að gera Ríkisútvarpið að hlutafélagi, en Framsókn er andvíg þótt hún sé í véfréttastíl í þessu máli eins og svo mörgum öðrum. Oft hef ég furðað mig á hve margir eru andvaralausir þegar þeir taka undir söng frjálshyggjumanna um breytingar á RÚV, að sjá ekki klaufirnar og halann á meintum velgerðamönnum úr þessari átt. Sjálfstæðisflokkurinn vill hlutafélagsvæða til að skerða lífeyrisréttindin og síðan selja stofnunina.

Til marks um afstöðu sjálfstæðismanna í Ríkisútvarpinu til þeirrar stofnunar og margra opinberra stofnana og fyrirtækja er að þeir ráða iðulega þar til forustu og setja í stjórnir svarna andstæðinga opinbers reksturs, menn sem oft og tíðum eru á kafi í fyrirtækjabransa. Á það t.d. við um núverandi formann útvarpsráðs, Gunnlaug Sævar Gunnlaugsson, sem er umsvifamikill og aðgangsharður í átökum fjárfesta um völdin og alla milljarðatugina sem nú er bitist um á Íslandi. Þetta segir sitt um sjálfsvirðingu þessara manna og að taka að sér verkefni sem þeir segjast vera andvígir, jafnvel fyrirlíta. Einnig er það til marks um afstöðu Sjálfstæðisflokksins og maður spyr sig stundum hvort þetta sé gert til höfuðs stofnununum og í þessu tilviki Ríkisútvarpinu.

Skoðun okkar í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði er sú að vandi Ríkisútvarpsins sé fjárhagslegs eðlis og stjórnsýslulegs. Þannig viljum við breyta stjórnsýslunni og höggva á þann fáránleika að meiri hluti útvarpsráðs sé í samræmi við stjórnarmeirihluta á þingi.

Við höfum sett fram tillögur og meira um það síðar þegar tilvonandi frumvarp ríkisstjórnarinnar kemur fram. En á eitt vil ég leggja áherslu. Við viljum ekki höggva á tengslin á milli Alþingis og Ríkisútvarpsins. Það er nefnilega hægt að vera málefnalegur og sanngjarn þótt menn séu kjörnir sem fulltrúar pólitískra flokka. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hafa hins vegar sýnt að þeim er ekki treystandi fyrir þeirri ábyrgð sem þeim hefur verið falin. Þess vegna er umræðan á Alþingi núna.

Spurningarnar þrjár til hæstv. ráðherra eru eftirfarandi:

1. Hvað á að gera varðandi fjárhagsvanda Ríkisútvarpsins? (Forseti hringir.)

2. Hver er tímaáætlun ráðherra ríkisstjórnar varðandi væntanlegt frumvarp?

3. Mun menntamálaráðherra flytja útvarpsstjóra þau skilaboð frá Alþingi sem hér hafa komið fram, að menn telji ráðningu fréttastjóra ekki standast (Forseti hringir.) hlutleysi og kröfu um fagleg og sanngjörn vinnubrögð og í ljósi þess sé eðlilegt (Forseti hringir.) að hann endurskoði afstöðu sína?

(Forseti (HBl): Forseti vill vekja hv. þingmanns á því að hann hefur fimm mínútur til umráða og þess vegna er ekki þinglegt að geyma sér að leggja fram spurningar þangað til ræðutíma er lokið og vil ég biðja hv. þingmann að íhuga það eftirleiðis.)