131. löggjafarþing — 88. fundur,  14. mars 2005.

Málefni Ríkisútvarpsins.

[15:33]

Dagný Jónsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Skammtímaminnið er mikið og það sannaðist í orðum hv. þingmanns sem talaði á undan mér. Ég veit ekki betur en að hann hafi ítrekað tekið sjálfur þátt í pólitískum ráðningum Ríkisútvarpsins. Það er greinilega búið og gert og annar kafli hafinn. (Gripið fram í: … faglegar …)

Fyrirsögn umræðunnar er Málefni Ríkisútvarpsins og að sjálfsögðu komumst við ekki hjá því að ræða um fréttastjóramálið. Málið snýst um það að farið var að lögum og útvarpsstjóri ber ábyrgð á ráðningunni. Gildandi lög segja til um það að útvarpsráð eigi að veita umsagnir um umsækjendur og það gerði ráðið. Málflutningur Samfylkingarinnar er ótrúverðugur þar sem samfylkingarmenn hafa tekið þátt í ráðningum. Menn eru afar fljótir að gleyma.

Varðandi Ríkisútvarpið munum við sjá frumvarp á næstu dögum þar sem á að breyta lögum um stofnunina. Mér þykir verra að nánast er búið að fjalla um frumvarpið í fjölmiðlum áður en það kemur til kasta Alþingis. (MÁ: Menntamálaráðherra …) Slík vinnubrögð eru ekki til fyrirmyndar. Markmið laganna verður að efla rekstur og hlutverk RÚV og það er virkilega tími til kominn, enda eru lögin um RÚV að mínu mati úrelt. Ég veit ekki til þess að Ríkisútvarpið sé til sölu og verð með þeim fréttum að hryggja hv. þm. Ögmund Jónasson. Ég vil að lokum vitna örstutt, með leyfi herra forseta, í ályktun okkar framsóknarmanna þar sem segir:

„Mikilvægt er að Ríkisútvarpið verði áfram í þjóðareigu og sjálfstæði þess eflt. Hraða ber endurskoðun laga um Ríkisútvarpið þar sem m.a. stjórnskipulag stofnunarinnar verður endurskilgreint og mið tekið af nýju fjölmiðlaumhverfi.“

Umfram allt verðum við að tryggja rekstur og hlutverk Ríkisútvarpsins og, eins og ég segi, meðan þessi lög gilda eiga menn að starfa samkvæmt þeim en við erum að vinna að því að breyta þeim.