131. löggjafarþing — 88. fundur,  14. mars 2005.

Málefni Ríkisútvarpsins.

[15:35]

Sigurjón Þórðarson (Fl):

Herra forseti. Hv. þm. Hjálmar Árnason spurði hvort lög hefðu verið brotin. Raunar hefur enginn spurt hann þeirrar spurningar því að enginn hefur sakað stjórnarflokkana um að hafa brotið lög. Þeir hafa gert sig seka um aðra hluti. Þeir hafa lítilsvirt umsækjendur um þetta starf og það er sorglegt að sjá hvernig stjórnarflokkarnir hegða sér og hve aumir útúrsnúningar flokkanna eru í þessu máli. Það sýnir hve aum staða Framsóknarflokksins er, flokkurinn á í miklum vanda og ætlar að bregðast við honum með því að stýra fréttum Ríkisútvarpsins. Það er greinilegt að við flutning hans á mölina — sem var staðfestur þegar formaður flokksins treysti sér ekki lengur til að vera í framboði á landsbyggðinni — virðist hann hafa misst allt jarðsamband (Gripið fram í.) og, hv. þm. Birkir J. Jónsson, það er vandi flokksins, það þarf að stýra fréttaflutningnum.

Ég tel að Framsóknarflokkurinn ætti frekar að líta til verka sinna og skoða þau. Fólk sættir sig ekki við þetta. Sjálfur hæstv. forsætisráðherra er flæktur í kvótakerfi sem hann bjó til handa sjálfum sér. S-hópurinn sem er tengdur Framsóknarflokknum fékk Búnaðarbankann fyrir lítið. Það er þetta, sjálf stjórnarstefnan sem er erfið en ekki fréttaflutningurinn. Auðvitað verða fjölmiðlar að segja fréttir og það er ekki hægt að kenna fréttamönnum um spillingaráruna sem liggur yfir Framsóknarflokknum. Menn verða að líta í eigin barm.

Auðvitað þurfa aumingja sjálfstæðismennirnir að verja þessa gjörð og það sést best hvað það er erfitt þegar meira að segja vanur maður eins og útvarpsstjóri treystir sér ekki í fjölmiðla, (Gripið fram í: Fastur í lyftu.) já, fastur í lyftu og hann treystir sér ekki (Forseti hringir.) í fjölmiðla til að verja þetta, enda er þetta (Forseti hringir.) algerlega óverjandi.