Málefni Ríkisútvarpsins.
menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (S):
Herra forseti. Í ljósi þeirra orða sem hafa fallið í þessari utandagskrárumræðu er rétt að taka það fram að Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei ályktað í þá veru að það eigi að selja Ríkisútvarpið, miklu frekar í þá veru að fara leiðir sem eru til þess fallnar að styrkja það (Gripið fram í.) og gera því kleift að standa í þeirri samkeppni sem það er í núna og standa undir þeim kröfum sem við gerum alla jafna til þessarar mikilvægu stofnunar.
En eitt er alveg ljóst, sú umræða sem við höfum tekið í dag, þessi utandagskrárumræða, endurspeglar að mínu mati og undirstrikar að það þarf að breyta lögunum um Ríkisútvarpið. Við erum, þingmenn úr öllum flokkum og þá sérstaklega stjórnarandstaðan, að ræða í rauninni málefni Ríkisútvarpsins út og suður. Stundum á að fara að lögum, stundum ekki. Stundum á að fara eftir ályktun útvarpsráðs, stundum. Þegar hv. þm. Merði Árnasyni datt í hug að vera í útvarpsráði og mæla með var það náttúrlega faglegt og átti að fara eftir því en þegar meiri hluti útvarpsráðs mælir samkvæmt lögum með einum ákveðnum umsækjanda er það allt í einu, bingó, ekki faglegt. Þá á ekki að fara eftir lögum. Þessi umræða er út og suður. Stundum á að gera þetta svona og stundum hinsegin, allt eftir því hvernig vindar blása hjá Samfylkingunni og félögum í stjórnarandstöðunni.
Það sem skiptir auðvitað mestu máli í þessu öllu saman, herra forseti, er að undirstrika það að við þurfum að ræða málefni Ríkisútvarpsins af yfirvegun. Við þurfum að eyða tortryggni í garð stofnunarinnar og ég sé fram á það að við fáum tækifæri til þess síðar í vikunni. Þá verður á dagskrá frumvarp sem verður til þess fallið að efla og styrkja Ríkisútvarpið með það í huga að það standi undir því hlutverki, því almannaþjónustuhlutverki, sem því ber skylda til að standa undir.