131. löggjafarþing — 88. fundur,  14. mars 2005.

Tekjuskattur og eignarskattur.

137. mál
[16:17]

Flm. (Sigurður Kári Kristjánsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Björgvini G. Sigurðssyni fyrir málefnalegar spurningar um þetta frumvarp. Hv. þingmaður spyr hvort það væri ekki hætta á því ef birting þessara skattskráa yrði lögð af að slíkt mundi hafa í för með sér aukin skattsvik.

Eins og ég rakti í ræðu minni er löggjöf á Norðurlöndunum ekki samræmd hvað birtingu þessara upplýsinga varðar. Ég nefndi að í norskum lögum eru sambærileg ákvæði okkar lagaákvæðum. Það eru víðtækar heimildir í sænskum lögum fyrir skattyfirvöld til þess að birta þessar upplýsingar. En í dönskum lögum er kveðið á um algjöra leynd um þessi málefni. Samkvæmt rannsóknum bendir ekkert til þess að skattsvik séu umfangsmeiri í Danmörku þar sem leynd ríkir yfir þessum upplýsingum en í Noregi þar sem allt er opið eða þá á Íslandi. Ef menn bera saman Norðurlöndin a.m.k. þá virðist ekki vera samhengi milli birtingarinnar annars vegar og skattsvika hins vegar. Ég hef því ekki áhyggjur af því að skattsvik aukist.

Varðandi síðan hina spurninguna um ójöfnuð og launamun kynjanna vil ég nú benda á að í opinberri umræðu eru laun tiltölulega fárra einstaklinga birt og upplýsingar um laun og launamun kynjanna munu eftir sem áður liggja fyrir hjá stéttarfélögunum og hjá viðsemjendunum sem munu þá geta gert rannsóknir á launaþróun sem kann að vera kynjabundin. Ég held að það eftirlit geti eftir (Forseti hringir.) sem áður haldið áfram þrátt fyrir að við leggjum ekki fram tekjur og (Forseti hringir.) skatta hvers og eins einstaklings.