Íslenskun á ræðum æðstu embættismanna.
Mörður Árnason (Sf) (andsvar):
Forseti. Þó að í þessu andsvari hafi ekki falist mikil andúð fagna ég upplýsingunum. Ég hef ekki heyrt þetta sjálfur. Kannski er þá styttra í að menn stigi hið fyrsta skref í málinu sem ég hygg að sé rökrétt, það að setja þetta ákvæði í stjórnarskrána, ásamt reyndar, að ég tel, þessu um táknmál heyrnarlausra. Út frá því væri svo hægt að halda áfram starfi sem ég skil ekki í öðru en að allir geti sameinast um því að ég held, hvað sem mönnum finnst um enska boltann hér og Evrópugerðirnar þar, að menn séu allir farnir að finna fyrir þessum vanda. Ef við ætlum að standa í stykkinu gagnvart forfeðrunum, gagnvart fólki hér á landi sem talar erlend mál ekki vel og enginn getur ætlast til þess að tali erlend mál vel, gagnvart niðjum okkar sem eiga rétt á því að fá íslenska tungu í arf, verðum við að fara að bretta upp ermar í þessu efni.