131. löggjafarþing — 89. fundur,  15. mars 2005.

Umgengni um nytjastofna sjávar o.fl.

215. mál
[14:42]

Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka formanni nefndarinnar fyrir skýr svör og vænti þess að þær upplýsingar sem fást við skoðun á framkvæmd þessara laga og reglugerðarákvæða byggða á þeim verði bæði sjávarútvegsnefndarmönnum og öðrum sem áhuga hafa aðgengilegar og auðvelt verði að nálgast þær til þess að við getum byggt reynslu okkar á því hvernig framkvæmdin hefur verið og menn megi þá öðlast meiri þekkingu á því hvernig notkun á lagabálkunum og reglugerðarákvæðunum byggðum á þeim hafi verið á undanförnum árum.

Ég þakka góð viðbrögð formanns nefndarinnar.