Varamaður tekur þingsæti.
Forseti (Birgir Ármannsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf frá hv. 5. þm. Norðvest., Guðjóni A. Kristjánssyni, dagsett 15. mars 2005:
„Þar sem ég get ekki sótt þingfundi frá 16. mars fram til 4. apríl, sumpart af einkaástæðum og sumpart út af dvöl erlendis, óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að 1. varamaður á lista Frjálslynda flokksins í Norðvest., Steinunn Pétursdóttir fulltrúi, Akranesi, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.“
Steinunn Pétursdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.