Miðaldra og eldra fólk á vinnumarkaði.
Helgi Hjörvar (Sf):
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að taka málið hér á dagskrá. Ég lýsi yfir óánægju minni með svör hæstv. félagsmálaráðherra hvað varðar innleiðingu á þeirri tilskipun sem hér hefur verið nefnd. Ég ræddi við ráðherrann, trúi ég fyrir um ári síðan, og mér sýnist ráðherrann ekki vera kominn neitt lengra í því máli en þá var. Það er þó brýnt, og einkennilegt að stjórnvöld skuli sérstaklega hafa lagst gegn því að innleiða þessa tilskipun gegn mismunun á grundvelli aldurs, fötlunar og fleiri þátta.
Ég spyr ráðherrann hvort ekki sé einboðið að fara einfaldlega sömu leið og Norðmenn eru löngu farnir og lögleiða þetta í íslenskan landsrétt. Hvers vegna er hæstv. félagsmálaráðherra svona miklu lengur að hugsa en Norðmenn og hvers vegna ætli hann sé svona miklu seinni að framkvæma en Norðmenn? Má ekki vænta þess að ráðherrann bretti upp ermarnar og fari að vinna að því að verja fólk hér gegn því að vera mismunað á grundvelli aldurs á vinnumarkaði?