Miðaldra og eldra fólk á vinnumarkaði.
Ásta R. Jóhannesdóttir (Sf):
Herra forseti. Ég legg áherslu á það hér hvað það er mikilvægt að innleidd verði í íslensk lög tilskipun Evrópusambandsins og sett verði rammalöggjöf gegn mismunun í starfi á vinnumarkaði vegna aldurs. Ég bendi á það hve afdrifaríkar uppsagnir eldra fólks geta verið, uppsagnir sem tíðkast mjög mikið hér á vinnumarkaði. Ég veit um fjölda dæma þess að fólk missir heilsuna í kjölfarið og það verður íþyngjandi bæði fyrir almannatryggingakerfið og heilbrigðisþjónustuna í heild. Þetta er mjög mikill kostnaðarauki fyrir hvort tveggja fyrir utan það hvaða áhrif þetta hefur á lífsgæði þeirra sem vilja sinna störfum sínum á vinnumarkaði fram að ellilífeyrisaldri.
Ég hvet hæstv. ráðherra til að beita sér fyrir þessu.