Þjónustusamningur við Sólheima.
Fyrirspyrjandi (Rannveig Guðmundsdóttir) (Sf):
Virðulegi forseti. Þetta var einstaklega lélegt svar hjá hæstv. ráðherra. Við höfum búið við það árum eða áratugum saman að málefni Sólheima hafa verið í hnút og það er ekki vegna hugmyndafræði, það er ekki út af því hvort fötluðum einstaklingum líður vel að búa í þorpi eins og þarna er, heldur vegna þess að gerðar hafa verið ósanngjarnar kröfur af hálfu ráðamanna á Sólheimum til ríkisins. Fyrirrennari hæstv. ráðherra, Páll Pétursson, bjó við sama hnútinn og hafði fullan vilja til að leysa hann. Hann var þungorður opinberlega yfir kröfum ráðamanna á Sólheimum og hvað gerist svo? Eftir að Ríkisendurskoðun hefur sent frá sér tvær alvarlegar skýrslur um að veitt hafi verið óhemjufé í þennan eina stað samanborið við það sem gert er annars staðar í öðrum samningum hins opinbera við stofnanir sem sinna fötluðum og gert alvarlegar athugasemdir við það, þá er gerður þjónustusamningur og orðið við öllum kröfum. Svo er því bara svarað að þarna sé tryggð fjölbreytni, þarna séu 40 fatlaðir og gert verði þjónustumat.
Ég er búin að lesa þennan samning, ég er búin að liggja yfir honum. Ég er líka búin að lesa skýrslurnar og þessi hnútur var á sínum tíma. Af hverju var hnúturinn? Ekki af því að vilji væri ekki til þess að gera vel á Sólheimum heldur vegna ofboðslega ósanngjarnra krafna eins manns. Það er óhugsandi að hæstv. ráðherra komi hingað og svari því ekki af hverju framlagið hækkar um 30 millj. Hann svarar því ekki hvað hafi orðið um þær 158 millj. sem Ríkisendurskoðun gagnrýnir. Hann svarar því ekki af hverju ekki eru gerðar kröfur um menntað starfsfólk með auknum greiðslum og hann svarar því ekki af hverju verið er að heimila Sólheimum að nota allt að 7 millj. í annað en þjónustu við fatlaða samkvæmt skipulagsskrá.
Ég mun, virðulegi forseti, bera fram skriflega fyrirspurn til að reyna að (Forseti hringir.) knýja fram svör við þessum spurningum.