Þrífösun rafmagns.
Hjálmar Árnason (F):
Herra forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að hreyfa við þessu eilífðarmáli sem hér er til umræðu og hæstv. ráðherra fyrir svörin. Það efast enginn um gildi og mikilvægi þrífösunar fyrir hinar dreifðu byggðir. Það er tækifæri til uppbyggingar á atvinnulífi.
Það liggur fyrir að forgangsröðunin er tilbúin, eins og hæstv. ráðherra greindi hér frá, og það liggur líka fyrir að það eru ekki allir staðir í hinum dreifðari byggðum sem þurfa á þrífösun að halda og þess vegna auðvitað mikilvægt að líta til þeirra þar sem þörfin er mest, eins og stærri kúabúa, þeirra sem eru í ferðaþjónustunni og í smærri iðnaði sem víða er að spretta upp. Þetta er grundvöllur í rauninni að byggðastefnu.
Stefnumörkunin liggur fyrir og því ber að fagna. Það er dapurlegt kannski að ekki skuli hafa gengið hraðar en raun ber vitni og því ber að fagna þeim drögum sem hér voru kynnt frá Rarik um að það eigi að leggja 650 millj. kr. í þetta og ganga þá (Forseti hringir.) nokkuð rösklega í það að byggja upp þrífösunina mikilvægu í dreifðum byggðum.