Þrífösun rafmagns.
Fyrirspyrjandi (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir ágætar umræður um málið og hæstv. ráðherra fyrir svarið þó að það hafi valdið ákveðnum vonbrigðum að ekki liggi skýrar fyrir hvernig ráðast eigi í þetta, hvernig sú kostnaðar- og framkvæmdaáætlun um brýnustu þörf eigi að líta út og getið var um fyrr í vetur að fyrir ætti að liggja.
Það þarf 1.200 millj. til að mæta þörfinni að fullu og 650 millj. eru áætlaðar í endurbætur á raforkukerfinu. Það er gleðilegt að tvöfalda eigi það fjármagn sem áætlað er til endurbóta á kerfi Rariks en það er alls ekki nóg. Það verður að fara hraðar og stíga fastar til jarðar þannig að þeir sem ekki búa við þriggja fasa rafmagn núna horfi fram á það á næstu árum því þetta stendur þeim byggðum verulega fyrir þrifum, það stendur nýsköpun í atvinnulífi fyrir þrifum þar sem ekki er um að ræða þriggja fasa rafmagn. Þetta telst til grundvallarþjónustu sem við eigum að veita. Það stendur upp á orkufyrirtækin að skila þjónustunni og oft og tíðum er um svæði að ræða sem eru steinsnar frá virkjununum þar sem rafmagnið er framleitt og engin leið að færa rök fyrir því að byggðirnar séu afskiptar að þessu leyti og njóti ekki þess jafnræðis sem í þessu felst. Það er verið að setja byggðirnar niður, það er verið að setja þær hjá í ákveðinni nýsköpun og í ákveðnum tækifærum og tómt mál að tala um raunverulega byggðastefnu á þessum svæðum ef ekki á að veita þessa þjónustu á næstu missirum. Þess vegna er ástæða til að skora á hæstv. ráðherra að auka enn við fjármagnið sem á að setja í endurbætur á raforkukerfinu og mæta þörfinni að fullu á næstu missirum.