131. löggjafarþing — 90. fundur,  16. mars 2005.

Opinber hlutafélög.

619. mál
[13:26]

Atli Gíslason (Vg):

Herra forseti. Vegna fyrirspurnarinnar vil ég minna á, eins og fram hefur komið, að fyrir þinginu liggur tillaga að þingsályktun um setningu laga um opinber hlutafélög sem ekki hefur komist á dagskrá og flutningsmaður er Álfheiður Ingadóttir, varaþingmaður VG. Þar er ályktað að fela viðskiptaráðherra að undirbúa að sett verði í lög almenn ákvæði um opinber hlutafélög. Markmiðið er að tryggja réttindi starfsmanna að stjórnsýslu- og upplýsingalögum og öðrum. Mér fannst fátt um svör við fyrirspurninni og ítreka: Er hæstv. viðskiptaráðherra tilbúin að veita þingsályktunartillögunni brautargengi? Það veitir ekki af, því með einkavæðingu ríkisfyrirtækja hefur ábyrgð gagnvart starfsfólki og réttindi þeirra ekki verið einkavædd. Það er svo einfalt og spurt er hvort hæstv. ráðherra sé tilbúin að veita því brautargengi. Er hæstv. ráðherra tilbúin að tryggja núverandi starfsmönnum Ríkisútvarpsins sömu réttindi og skyldur og þeir hafa í dag hjá Ríkisútvarpinu sf.?