Lækkun veggjalds í Hvalfjarðargöngum.
Fyrirspyrjandi (Jóhann Ársælsson) (Sf):
Hæstv. forseti. Það er alkunna að Hvalfjarðargöng hafa algjöra sérstöðu meðal samgöngumannvirkja á landinu. Þau eru byggð upp með einkafjármagni og borguð af notendunum. Ríkið á að fá þau afhent skuldlaus eftir 20 ára rekstur. Samt er það svo að ríkið innheimtir virðisaukaskatt af notkun ganganna.
Nú er verið að byggja sambærileg mannvirki á Austurlandi. Ekki er meiningin að innheimta nein veggjöld af þeim göngum svo vitað sé. Það á að fara að breikka Reykjanesbrautina og halda því áfram, ekki er meiningin að innheimta nein gjöld þar.
Gjald þetta stendur í vegi fyrir eðlilegri byggðaþróun, það mismunar fólki og það torveldar eðlilega atvinnusókn á milli svæða. Spölur, sem rekur Hvalfjarðargöngin, hefur unnið að því að ná fram lækkunum á gjaldinu með því að endursemja um lán sín, greiða upp og fá nýja fjármögnun og sú endurskoðun er komin á lokastig. Það mun líklegast vera blanda af lækkun vaxta og lengingu lána sem skilar einhverri lækkun en sú lækkun mun ekki skipta sköpum fyrir þá sem nota göngin, það verður ekki um svo verulega lækkun að ræða sem raunverulega þörf er á. En ljóst er að Spölur er að gera það sem hann mögulega getur í málinu.
Ríkið er líka aðili að þessu máli. Það innheimtir virðisaukaskatt og það stendur svo á núna að ríkið er nokkurn veginn að ná um þessar mundir inn öllum þeim skatti sem gefinn var eftir við uppbyggingu þessa mannvirkis á sínum tíma.
Hvað ætla menn þá að gera? Hvað eftir annað hafa verið yfirlýsingar ráðamanna, m.a. hæstv. samgönguráðherra, um að fella eigi niður virðisaukaskatt af umræddu mannvirki og þrýst hefur verið frá hendi ráðamanna á Spöl að veggjaldið verði endurskoðað eins og mögulegt er frá Spalar hendi. Nú er það komið á lokastig. Hér hafa legið fyrir tillögur, t.d. frá samflokksmanni hæstv. fjármálaráðherra, um að fella þetta gjald niður. Er ekkert að marka það sem hér er á ferðinni?
Ég hlýt að spyrja og ég óska eftir skýrum svörum frá hæstv. fjármálaráðherra: Hvað telur hæstv. ráðherra að ríkið eigi að gera til að taka þátt í lækkun veggjalda í Hvalfjarðargöngum? Mér finnst kominn tími til að ráðamenn ríkisstjórnarinnar svari því.