Lækkun veggjalds í Hvalfjarðargöngum.
fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (S):
Virðulegi forseti. Það er hárrétt sem fram kemur hjá hv. þingmanni að þetta mikla mannvirki, Hvalfjarðargöngin, hefur mikla sérstöðu í samgöngumálum í landinu. Það er alveg ljóst að umrætt mannvirki hefði ekki komið þegar það kom og ekki í fyrirsjáanlegri framtíð ef ekki hefði verið farið í þá fjármögnun sem gert var og er einsdæmi hér á landi. Það er mjög mikilvægt að skilja ekki við þetta mál þannig að þessi fjármögnunarmöguleiki sem hefur gefist svo vel eyðileggist gagnvart öðrum hugsanlega sambærilegum samgöngubótum í framtíðinni. Þess vegna verða menn að halda sig við það sem ákveðið var í upphafi í þessu efni.
Ljóst er að göngin munu standa undir sér og geta greitt kostnaðinn sem fylgdi því að gera þau og umferð hefur verið þarna meiri en gert var ráð fyrir, tekjurnar af göngunum þar af leiðandi meiri. Það er alrangt að gjaldið í göngunum eins og það er núna torveldi eðlilega atvinnusókn á milli svæða, eins og hv. þingmaður hélt fram. Ég leyfi mér að fullyrða að það sé alrangt. Þvert á móti sýna allar rannsóknir að göngin hafa haft stórkostleg áhrif, ekki bara á Vesturlandi, heldur miklu víðar þar sem áhrifa þeirra nýtur við eftir að þau komust í gagnið.
Mikið er kvartað undan því að veggjaldið sé hátt. Almenna veggjaldið er 1 þús. kr., hefur verið óbreytt frá upphafi og hefur þar af leiðandi lækkað töluvert að raungildi. Með hámarksafslætti er gjaldið sem menn greiða að sjálfsögðu miklu minna, 400 eða 440 kr. fyrir hverja ferð. Það verða menn að bera saman við það sem kostar að keyra gömlu leiðina, menn verða að bera veggjaldið saman við það sem kostar að keyra gömlu leiðina, eldri leiðina, í bensíni, í tíma, sliti á bílum o.s.frv. En lykilatriðið í málinu er auðvitað það að hægt er að aka aðra leið eftir góðum vegi ef menn vilja ekki greiða veggjaldið. Þann valkost eiga allir sem þarna fara um, sem er ólíkt því sem hv. þingmaður nefndi varðandi önnur mannvirki sem nú eru í byggingu. Ekki er hægt að bera það saman að keyra göngin milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar annars vegar við Hvalfjarðargöngin, að ætla að bera saman leiðina fyrir Hvalfjörð og leiðina fyrir Vattarnes sem er handónýtur vegur og hættulegur og væri gott að losna við úr almennri umferð. (Gripið fram í.)
Það sem hins vegar liggur fyrir er að sjálfsögðu að reyna að lækka veggjaldið. Rekið er hlutafélag með sérstakri stjórn sem hefur það verkefni að gæta hagsmuna þess. Vextir í heiminum hafa lækkað mikið að undanförnu. Ég tel að stjórnin hefði eflaust getað gripið inn í þetta mál eitthvað fyrr en mér er kunnugt um, eins og þingmaðurinn sagði, að stjórn félagsins hefur að undanförnu unnið að því hörðum höndum að kanna endurfjármögnun á þeim lánum sem á göngunum hvíla og ég er sannfærður um að út úr því getur komið hagstæðari fjármögnun sem að sjálfsögðu þýðir lægra veggjald.
Spurt hefur verið að því fyrir hönd félagsins með hvaða hætti ríkissjóður kæmi að því máli. Ég hef lýst því yfir skriflega til forsvarsmanna félagsins að ég muni vilja beita mér fyrir því að stimpilgjöld af endurfjármögnuninni falli niður eins og gert var þegar upphaflegu göngin voru fjármögnuð. Ég hef sagt í sama bréfi til félagsins að við munum fallast á að lán ríkisins verði greitt upp og það þá endurfjármagnað með hagstæðara láni ef félagið á kost á því. En ég hef hins vegar skrifað félaginu alveg skýrt um það að ég telji ekki koma til greina að fella niður eða lækka sérstaklega virðisaukaskattinn á veggjaldinu.
Ég tel ekki að það sé rétt eftir haft að samgönguráðherra hafi sagt að hann sæi fyrir sér að það yrði fellt niður. Hins vegar höfum við báðir sagt, og það er stefna ríkisstjórnarinnar, að þegar tekst að lækka lægra þrepið í virðisaukaskatti, þar sem veggjaldið er ásamt öðrum liðum, þá lækkar skatturinn að sjálfsögðu á því eins og öðru sem þar er að finna. Þetta er framlag ríkissjóðs í þessu máli, virðulegi forseti.