131. löggjafarþing — 91. fundur,  16. mars 2005.

Fjárhagsstaða ellilífeyrisþega.

[15:47]

Jónína Bjartmarz (F):

Herra forseti. Ég þakka málshefjanda þessarar umræðu og eins hæstv. ráðherra fyrir svör hans. Ég vil í þessu samhengi minna á að árið 2002 var gert samkomulag við eldri borgara í níu liðum um þau forgangsmál sem Landssamtök eldri borgara vildu hrinda í framkvæmd. Þetta samkomulag var unnið í góðu samstarfi eldri borgara og ráðuneytisins. Nú þegar er búið að efna átta af níu liðum þessa samkomulags. Meðal þeirra áætlana sem Landssamband eldri borgara lagði fram í þessari vinnu og kemur fram í samkomulaginu var hækkun fjárhæðar tekjutryggingar og tekjutryggingarauka frá Tryggingastofnun ríkisins sem tók gildi 1. janúar 2003. Frá sama tíma lækkaði líka skerðingarhlutfall tekna gagnvart tekjutryggingaraukanum, úr 67% í 45%.

Önnur kjarabót til aldraðra er að samkvæmt samkomulaginu varð 2 þús. kr. hækkun bæði á tekjutryggingu og tekjutryggingarauka á árinu 2004. Þær tvær framkvæmdir skiluðu öldruðum tæpum 3 milljörðum.

Málshefjandi nefndi áðan — ég vil aftur taka upp þetta samkomulag — hjúkrunarrými fyrir aldraða og í því samhengi vil ég geta þess að samkomulagið gekk líka út á hjúkrunarrými og fjölgun þeirra. Á árunum 2003–2004 hefur þeim verið fjölgað um ein 200 og hvað varðar Stór-Reykjavíkursvæðið eru núna áform um að hefja framkvæmd við rúmlega 100 hjúkrunarrými til viðbótar þessum 200.

Hæstv. ráðherra fór hér áðan yfir hvað meðaltekjur ellilífeyrisþega hafa hækkað á árunum 1995–2003, um rúm 80%, og eins að kaupmáttur þessa hóps hefur aukist umfram almennan kaupmátt.

Það sem ég vil fá að segja, herra forseti, að lokum er að ég tel einsýnt að við eigum að einbeita okkur að því að bæta kjör þeirra ellilífeyrisþega sem hafa þau bágust. Það eru þeir sem einungis hafa lífeyri frá almannatryggingum úr að spila og ég tel (Forseti hringir.) sjálfsagt að þetta sé unnið í góðu samkomulagi við samtök eldri borgara og forgangsröðunina á þessu sviði.