131. löggjafarþing — 91. fundur,  16. mars 2005.

Fjárhagsstaða ellilífeyrisþega.

[15:52]

Guðmundur Hallvarðsson (S):

Frú forseti. Það er ósköp eðlilegt að baráttuhópur aldraðra láti heyra í sér og veki athygli á stöðu sinni. Hitt er annað og rétt að benda á að á tekjuárinu 2003 greiddi rúmlega helmingur allra ellilífeyrisþega eignarskatt sem gerir samtals um 475 millj. kr. Með breytingunum sem þegar eru orðnar á eignarsköttum og koma til framkvæmda á næsta ári verður umtalsverð breyting á högum þeirra og mun þetta skila sér í vasa ellilífeyrisþega.

Það er dálítið merkilegt þegar rætt er um kjör ellilífeyrisþega að enginn hv. stjórnarandstæðingur kemur inn á þá staðreynd að á sama tíma og ríkisstjórnarflokkarnir hafa lækkað eignarskattinn eykur R-listinn í Reykjavík skattálögur á þá eldri í formi fasteignagjalda. (Gripið fram í.)

Virðulegi forseti. Hér hefur verið komið inn á mál sem varðar almannatryggingar og eins og segir, með leyfi forseta, í 65. gr. skulu bætur almannatrygginga, svo og greiðslur, breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ákvörðun þeirra skal taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.

Þetta var gott ákvæði sem kom inn og hefur tryggt þeim öldruðu talsvert. Á árunum 2002–2004 hækkuðu t.d. meðalgreiðslur til ellilífeyrisþega um 15,3% en launavísitala hækkaði á sama tíma um 10,6%. Það má sjá að þarna hefur verið stigið gott spor í þessa átt.

Hins vegar má alltaf deila um fortíðina og ég ætla ekki að blanda henni inn í svo stuttan tíma sem ég hef til að flytja mál mitt. Það var aðeins komið inn á hjúkrunarheimili og rætt um að þar væri mikill skortur. En það er rétt eins og hv. þm. Jónína Bjartmarz kom inn á áðan að á þremur árum hefur verið veitt nokkur úrlausn í því, þ.e. um 200 hjúkrunarrými hafa verið byggð hér, og þar af eru um 180 á höfuðborgarsvæðinu.