131. löggjafarþing — 91. fundur,  16. mars 2005.

Fjárhagsstaða ellilífeyrisþega.

[15:54]

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv forseti. Ég þakka hv. málshefjanda Gunnari Örlygssyni fyrir ágætar spurningar sem hann bar fram, m.a. hvort hæstv. ráðherra hygðist beita sér fyrir verulegum kjarabótum til handa öryrkjum og ellilífeyrisþegum. Ég vil bæta einni spurningu við: Hyggst hæstv. ráðherra fara að lögum? Eins og hér var vísað í var það fest í landslög árið 1997 að almannatryggingar skyldu taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækkuðu aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. (Gripið fram í: Það er gott ákvæði.) Það er ágætt ákvæði, svo langt sem það nær, en þá er það náttúrlega forsenda að því sé hlítt, farið sé að ákvæðinu.

Menn líta til eins árs. Ég hef skoðað þessar hækkanir út frá nokkrum reikniformúlum. Hækkun bótanna frá desember 2003 til desember 2004 er 3%, vísitala neysluverðs 3,9% og vísitala launa 6%. Jafnvel þó að við höldum okkur við vísitölu neysluverðs sem afdráttarlaust er kveðið á um í lögunum, því að menn hafa deilt um útreikninga á launavísitölunni, er verið að brjóta lög á öryrkjum og ellilífeyrisþegum. Ef við skoðum janúar 2004 til janúar 2005 er hækkun bóta 3,5%, vísitala neysluverðs 4,01%, vísitala launa 6,6%. Hér er einnig verið að brjóta lög á lífeyrisþegum og öryrkjum samkvæmt þessari formúlu. Ef við skoðum ársmeðaltölin frá 2003–2004 er hækkun bóta 3%, vísitala neysluverðs 3,2%, vísitala launa 4,6%. Hér er óumdeilanlega verið að brjóta landslög á öryrkjum og lífeyrisþegum. Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra: Ætlar ríkisstjórnin að fara að lögum?