Sveitarstjórnarlög.
Einar K. Guðfinnsson (S) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvað hv. þingmaður á við þegar hann segir að menn vilji ekki ræða vanda landsbyggðarinnar. Hvað vorum við að gera klukkan hálftvö í dag? Þá fór fram utandagskrárumræða um vanda tiltekinnar atvinnugreinar vegna ástands sem skapaðist norður á Akureyri. Það vorum við að ræða. Erum við þá ekki að taka fyrir sérstakan vanda sem uppi er á því landsvæði, vanda sem snertir þar með skipasmíðaiðnaðinn sem m.a. starfar á landsbyggðinni? Ætli við höfum ekki einhvern tíma borið við að ræða málefni sjávarútvegsins úr þessum ræðustóli? Ég hef ekki tölu á því hversu oft ég hef átt erindi upp í þennan stól til að fjalla um þessi mál.
Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að vandi sjávarbyggðanna er mjög alvarlegur og fyrir því eru mjög margar ástæður. Ein er auðvitað sú sem hv. þingmaður nefnir, að það hefur orðið samþjöppun aflaheimilda. Sú samþjöppun aflaheimilda hefði getað orðið í aflamarkskerfi. Hún hefði líka getað orðið í sóknarmarkskerfi þar sem við værum með framseljanlegan veiðirétt. Við stöndum einfaldlega frammi fyrir þessu.
Við vitum líka að jafnvel þó að aflaheimildir hafi verið til staðar á ákveðnum stöðum þá hefur það ekki dugað þessum sjávarbyggðum til að standa í ístaðinu gagnvart þeirri miklu samkeppni sem birtist annars staðar í landinu. Þess vegna hafa menn verið að reyna að horfa til annarra hluta. Sá sem hér stendur hefur t.d. verið óþreytandi allan sinn feril að reyna að vekja athygli á mikilvægi þess að færa til opinber störf út á landsbyggðina. Að mínu mati felast langsamlega mestu sóknarfærin í því að fjölga störfum á landsbyggðinni, að færa slík störf út á land.
Í þeim vaxtarsamningi sem nýlega var undirritaður varðandi Vestfirði er t.d. vakin athygli á því að til þess að snúa íbúaþróuninni þar við þannig að íbúum fjölgi um hálft prósent á ári sem væri heilmikið þá þarf ekki að fjölga störfum á Vestfjörðum nema um 25. Af því að hv. þingmaður nefndi Bolungarvík sérstaklega þá sýnist mér að þetta þýði að þar þyrfti að fjölga þar störfum um þrjú á ári, að nettófjölgun þyrfti að vera þrjú á ári til að snúa þar við íbúaþróun.
Við sjáum af þessu hver vandinn er og þess vegna, virðulegi forseti, var ég að reyna að hamra á því sem ég veit ekki hvort hv. þingmaður heyrði því hann kom með þvílíkum heljarstökkum í þingsalinn, en ég var einfaldlega að vekja athygli á því að þessi sameiningarhrina mætti ekki leiða til þess að opinberum störfum á landsbyggðinni fækkaði og hafi hv. þingmaður ekki heyrt þetta þá vona ég að hann sé sammála mér.