131. löggjafarþing — 93. fundur,  21. mars 2005.

2. fsp.

[15:18]

Arnbjörg Sveinsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir svörin. Það er reyndar svo að komið hafa viðbrögð frá forsvarsmönnum annarra sveitarfélaga um þetta útspil borgarstjórans og þau eru afskaplega misánægð með það. Reyndar sagði borgarstjóri í fréttum Ríkisútvarpsins að yfirlýsingar annarra forsvarsmanna sveitarfélaga væru hysterískar. Ekkert skal ég segja um það en auðvitað þurfa menn að ræða svona hluti í samhengi.

Ég tek undir með hæstv. fjármálaráðherra að það sem rætt var í aðdraganda þess að samkomulag náðist um tekjustofna ríkis og sveitarfélaga var einmitt að komið væri að fjárhag þeirra sveitarfélaga sem höllum fæti standa og þurfa virkilega á því að halda að fá hjálp. Ég held að það hafi nákvæmlega sýnt sig núna, (Forseti hringir.) að Reykjavíkurborg þurfti ekki á auknum fjármunum að halda.