3. fsp.
samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S):
Virðulegur forseti. Hv. þm. Jóhann Ársælsson veit það, held ég, ágætlega að ég er áhugamaður um að lagður verði vegur um Arnkötludal eins og fleiri hv. þingmenn í því kjördæmi. Talandi um áherslur í byggðamálum finnst mér hv. þingmaður tala úr miklu glerhúsi. Vil ég minna hv. þingmann á að ekki hefur farið mjög mikið fyrir stuðningi hv. þingmanna Samfylkingarinnar þegar kemur að mikilvægum byggðamálum, eins og háskólamálefnum á Vestfjörðum svo ég taki eitt dæmi þar sem hv. þingmenn hafa haft allt á hornum sér. Þegar staðið hefur verið í góðri samvinnu við heimamenn á Vestfjörðum að því að styrkja háskólastarfsemi á Vestfjörðum hafa þeir snúist algerlega gegn því. Það er þess vegna afskaplega merkilegt að hv. þingmaður skuli koma hingað upp, breiða úr sér og væna aðra um lítinn áhuga fyrir uppbyggingu og eflingu byggðanna á því svæði.