Um fundarstjórn.
Einar K. Guðfinnsson (S):
Virðulegi forseti. Þetta er dálítið sérkennileg umræða. Nú er búið að snúa við þingsköpum Alþingis. Nú er verið að tala þannig að þetta eigi að vera óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra sem megi bara koma frá stjórnarandstöðuþingmönnum. (Gripið fram í.) Það er í rauninni það sem hérna var haldið fram, af báðum hv. þingmönnum, Helga Hjörvar og Sigurjóni Þórðarsyni.
Nú gerist það að hv. þm. Arnbjörg Sveinsdóttir tekur upp mál sem var mjög mikið rætt á fundi sveitarstjórnarmanna og forseta í mars, vakti mikla furðu og mikla gagnrýni og það var mjög eðlilegt að undir þessum dagskrárlið kæmi þetta mál fram vegna þess að það snerti líka umræðu sem hér fór fram á fimmtudaginn var. Ætlar einhver hv. þingmaður að halda því fram að það hafi verið óeðlilegt að mál af þessu tagi yrði borið inn í Alþingi eða er það þannig að hér eigi að fara fram eins konar ritstýring af hálfu stjórnarandstöðunnar um það hvað megi taka fyrir, hvenær stjórnarliðar megi taka til máls?
Ég ætla að koma því á framfæri við hæstv. forseta að á lestrarsal Alþingis verði lagt fram yfirlit um það nákvæmlega hvaða fulltrúar hvaða flokks hafa tekið til máls undir þessum dagskrárlið í vetur þannig að það komi algjörlega fram hvernig það skiptist milli þingflokkanna. Ég geri ráð fyrir því að þá komi glögglega fram að a.m.k. hafi fulltrúar Sjálfstæðisflokksins ekki verið mjög fyrirferðarmiklir í þeirri umræðu. Kannski stafar það af því að hæstv. forseti hafi ekki gefið mönnum orðið, það veit ég ekkert um, en a.m.k. þarf þetta að koma fram. Þetta er undarleg umræða, að taka hana svona upp og gera það tortryggilegt þegar hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins, stærsta þingflokksins, taka til máls undir þessum dagskrárlið, bera fram mjög eðlilegar fyrirspurnir um mál sem verið er að ræða í þjóðfélaginu og kalla á miklar tilfinningar af hálfu stjórnarandstöðunnar, enda er greinilega verið að koma við kaunin á undarlegu máli sem bar að með sérstökum hætti.
Í annan stað er hitt að það er auðvitað fullkominn réttur stjórnarliða að taka upp mál af þessu taginu. Þess vegna er umræðan bæði fráleit, undarleg og tilefni hennar algjörlega út í loftið.