131. löggjafarþing — 96. fundur,  21. mars 2005.

Sveitarstjórnarlög.

639. mál
[19:00]

félagsmálaráðherra (Árni Magnússon) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Málið snýst fjarri lagi fyrst og fremst um að einhver áherslumunur kunni að vera milli stjórnarflokkanna. Málið snýst fyrst og fremst um það í því samhengi sem við ræðum það hér, að eitt sveitarfélaganna, Reykjavíkurborg, hefur ákveðið upp á sitt eindæmi að bjóða gjaldfrjálsan leikskóla. Við því er ekkert að segja, en viðkomandi sveitarfélag stendur þá bara undir því. Það er kjarni málsins.