131. löggjafarþing — 96. fundur,  21. mars 2005.

Sveitarstjórnarlög.

639. mál
[19:03]

Sigurjón Þórðarson (Fl) (andsvar):

Herra forseti. Mér fannst gæta ákveðinnar viðkvæmni þegar ég minntist á sjávarútveg og ég skil það, enda hefur Framsóknarflokkurinn mjög vondan málstað að verja. En ástæðan fyrir því að ég dró sjávarútveginn inn var að ég vildi ræða rót vandans, atvinnuástandið á landsbyggðinni. Sumir ágætir framsóknarmenn hafa áttað sig á því en það er eins og það hafi gleymst hjá núverandi ríkisstjórn. Ég vil t.d. minnast á fyrrum ráðherra, Pál Pétursson, hann fór með störf út á land. En það er ekki hægt að segja um þá ríkisstjórn sem nú er við völd, heldur hefur hún bara dregið störf suður til Reykjavíkur. Það er náttúrlega óþolandi og rót vandans.

Ég held að það sé ekki leiðin til að rétta hlut sjávarbyggðanna að fara að róta með peninga og stækka jöfnunarsjóð, ég lít ekki á það sem verkefni til framtíðar og ég held að hver maður sjái það.