131. löggjafarþing — 98. fundur,  22. mars 2005.

Athugasemd.

[13:31]

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Fyrir nokkru síðan beindi ég fyrirspurn til hæstv. viðskiptaráðherra þar sem ég óskaði eftir upplýsingum um hve margar fasteignir, þ.e. íbúðir annars vegar og lóðir hins vegar, væru skráðar í veðmálabækur sem eign viðskiptabanka, sparisjóða og annarra lánastofnana sem starfa eftir lögum um fjármálafyrirtæki. Ég óskaði eftir því að þessar upplýsingar yrðu sundurgreindar með tilteknum hætti.

Nú hefur borist svar, eða öllu heldur svarleysi, frá ráðuneytinu þar sem segir að ráðuneytið ráði ekki yfir þessum upplýsingum, það hafi leitað til Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja og í gögnum sem mér hafa verið send kemur fram að þau samtök telji þetta ekki eiga að vera opinberar upplýsingar, framangreind fyrirspurn beinist að einkamálefnum viðkomandi félaga. Er þá væntanlega átt við banka og verðbréfafyrirtæki.

Tildrög þess að ég beindi þessari fyrirspurn til ráðuneytisins eru þau að í opinberri umræðu hefur því verið haldið fram að bankarnir keyptu lóðir og fasteignir, hefðu jafnvel byggingarverktaka á sínum snærum eða í sínum greipum og væru þannig óbeint orðnir áhrifavaldar í eignaverðssprengingunni. Inn í þessar umræður fléttuðust einnig kjör verkamanna í byggingarbransanum, kjör fólks sem hefur verið flutt hingað til landsins svo langt utan við lög og rétt.

Samkvæmt lögum sem gilda í landinu um fjármálafyrirtæki er viðskiptabönkum, sparisjóðum og lánafyrirtækjum óheimilt að stunda hliðarstarfsemi nema hún sé í beinu samhengi við bankastarfsemi. Nú spyr ég þar sem hæstv. viðskiptaráðherra er stödd á þingi hvort ráðuneytið ætli að láta hér við sitja eða hvort það komi til með að beina fyrirspurn til Fjármálaeftirlitsins sem hefur þá skyldu að sjá til þess að landslögum sé sinnt (Forseti hringir.) að þessu leyti.