Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins.
Steingrímur J. Sigfússon (Vg):
Frú forseti. Ég get tekið undir það með síðasta ræðumanni að ég held að ekki þurfi að viðhafa neinn asa hér. Það er ekki hundrað í hættunni þó að menn taki sér tíma til að skoða þessi mál og fara yfir þau. Sé svo að það sé að draga úr þörfinni fyrir þessa þjónustu þá er varla hundrað í hættunni þó að þeim þörfum, sem þó eru til staðar enn og lýsa sér í allnokkrum umsóknum á ári hverju, sé þó sinnt á meðan menn skoða það vandlega hvort viðbrögðin við núverandi aðstæðum eigi að vera þau að slá þetta einfaldlega af án þess að nokkuð komi í staðinn.
Ég hefði reyndar fyrr átt von á því að efnisinnihald frumvarps frá hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra um Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins sem kæmi fyrir þetta þing yrði annað, að efnisinnihald þess yrði um fjármuni til Nýsköpunarsjóðs til að sinna sínu almenna hlutverki. En það bólar ekkert á því að hæstv. iðnaðarráðherra ætli á nokkurn hátt að koma til móts við þá stöðu sem nú er orðin uppi í Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, þessu helsta flaggskipi sem átti að vera hvað varðar fjármagn til uppbyggingar í nýjum atvinnugreinum eða nýjum fyrirtækjum þar sem ástæða væri til að opinberir aðilar stæðu á bak við eða tryggðu að til staðar væri eitthvert laust fé til uppbyggingar og hlutafjárkaupa í nýsköpun í atvinnulífinu og þá meira en eitthvert tannfé til rannsókna og stofnunar fyrirtækja, þ.e. í sumum tilvikum um allumtalsverðar fjárhæðir sem gætu runnið sem hlutafjárþátttaka í uppbyggingu fyrirtækja.
Staðan er sú eins og kunnugt er að Nýsköpunarsjóður er fullfjárfestur og hann gerir ekki betur en að halda sjó um þessar mundir og hefur ekkert til ráðstöfunar í ný verkefni nema þá það takmarkaða fé sem í einhverjum tilvikum skapast með því að hann selji eign sína í fyrirtækjum sem hann hefur áður fjárfest í. Það er hins vegar í fæstum tilvikum tímabært og niðurstaðan er auðvitað sú að Nýsköpunarsjóður er í raun og veru bundinn og óvirkur þátttakandi á markaðnum um þessar mundir.
Við höfum lagt fram frumvarp, frú forseti, um það að Nýsköpunarsjóður fái 1 milljarð kr. á ári næstu þrjú árin til að hann geti sinnt hlutverki sínu af einhverjum myndugleik. Það er tilfinnanlegur skortur á fé á þessum hluta nýsköpunarmarkaðarins ef svo má að orði komast — fagmennirnir kalla það „fjárfestingargat“ — og það er í raun og veru þeim mun tilfinnanlegra sem það blasir við hverjum manni að orka og áhugi innlendra fjárfesta beinist öll að útlöndum um þessar mundir af ýmsum ástæðum. Það virðist fyrir það fyrsta vera mikil tískubylgja en svo er auðvitað augljóst mál að hátt gengi krónunnar ýtir undir það að menn kaupi frekar fyrirtæki í útlöndum en á Íslandi. Það má segja að þau séu á sama útsöluverðinu sem þetta gengi býr til eins og bara bílar eru ódýrir í innflutningi o.s.frv. Þetta kann auðvitað að breytast einhvern tímann á næstu missirum ef gengi krónunnar breytist en svona er staðan í dag og ekkert í svipinn sem bendir til að á því sé að verða breyting.
Nei, það er ekki slíkt frumvarp sem kemur frá hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra og byggðamálaráðherra heldur frumvarp um að leggja niður tryggingardeild útflutningslána sem starfrækt hefur verið, var komið þarna fyrir eða fylgdi með í góssinu inn í Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins.
Sambærileg starfsemi er víða starfrækt á einhverju formi í löndunum í kringum okkur. Ég hef svo sem litlar forsendur til að fullyrða það en mér er þó nær að halda að það sé frekar regla en undantekning að einhvers konar fyrirkomulag í formi útflutningslánasjóða, einhvers konar „export credit“ sjóða eða tryggingardeilda sé við lýði, þ.e. menn geti með einhverjum hætti leitað sér að slíkri aðstoð eða slíkri fyrirgreiðslu þegar þeir glíma við aðstæður af því tagi að á þetta reynir, að á þetta er kallað. Það er þá væntanlega vegna þess að þeir eru að reyna fyrir sér í viðskiptum á mörkuðum þar sem þörf er fyrir þetta eða að eðli starfseminnar eða sú grein sem þeir eru starfandi í er þannig að á þetta reynir. Þetta er að sjálfsögðu mismunandi eftir greinum og mörkuðum o.s.frv. Svo mikið er víst t.d. að á það hefur reynt og það hefur sannarlega háð íslenskum skipaiðnaði í tilraunum til útflutnings sem merkilegt nokk eru aðeins til staðar. Það hefur verið mjög erfitt að tryggja fjármögnun slíks væntanlegs útflutnings á smíðatíma og tryggja yfirfærsluna yfir í það að kaupandinn taki við skipinu, skrái það erlendis ef um smíði á skipi er að ræða, fái á það skipaskrárnúmer sem yfirleitt er forsenda þess síðan að veð sé tækt í viðkomandi skipi. Sem sagt, skrokkur sem er í smíðum og safnar á sig miklum kostnaði, hefur ekki fengið skipaskrárnúmer og er ekki kominn á skrá, eins og sagt er, er þar af leiðandi ekki tækur sem veð. Þannig hafa reglurnar verið. Hvernig leysa menn þetta erlendis? Jú, menn leysa það t.d. með einhvers konar útflutningskreditsjóðum eða tryggingarsjóðum.
Ég held að fara eigi mjög vel yfir það í viðkomandi þingnefnd hvort það séu réttu viðbrögðin af hálfu hv. Alþingis sem hæstv. ráðherra leggur hér til að slá einfaldlega þessa starfsemi af. Þó að orðið hafi áföll í starfrækslu deildarinnar á undanförnum árum eru það auðvitað engin rök í sjálfu sér heldur er það eitthvað sem menn þurfa að taka á og reyna að ráða bót á með vandaðri vinnubrögðum. Auðvitað er það svo, eðli málsins samkvæmt, að menn verða að reikna með því að í sumum tilfellum geti orðið einhver afföll. Ef engin minnsta hætta væri á því væri væntanlega engin þörf fyrir starfsemi af þessu tagi. Það er vegna þess að menn eru að glíma við … (Gripið fram í.) Já, menn eru að glíma við aðstæður þar sem slíkt getur auðvitað hent. Sú röksemdafærsla er því frekar fátækleg, finnst mér, að segja einfaldlega: „Því er ekki talið réttlætanlegt að viðhalda rekstri tryggingardeildarinnar.“ Þrátt fyrir að menn hafi ætlað sér að endurskipuleggja starfsemina fyrir ekki lengri tíma en tveimur eða þremur árum síðan og undirrita samninga þar um og hvaðeina og greining á þessari stöðu fyrir akkúrat jafnlöngum tíma leiddi til þess að menn töldu að þörf væri fyrir áframhaldandi starfsemi tryggingardeildar útflutningslána eða einhvers sambærilegs fyrirkomulags.
Hvernig gat það verið að svo seint sem á árinu 2001 og 2002 væri það niðurstaða af því að skoða málið að þörf væri fyrir þetta áfram og að styrkja þyrfti þessa starfsemi? En nú er allt í einu eins og blaðið hafi snúist algerlega við og það á bara a slá hana af af því að menn hafa lent í einhverjum erfiðleikum þarna.
Hver yrði t.d. þörfin eða hvernig mundu menn nýta sér þetta ef reglunum yrði breytt, ef skoðað yrði að fara að einhverju leyti aðrar leiðir í þessum efnum? Kæmi þá kannski allt í einu í ljós að það gæti blómstrað ýmis starfsemi sem á erfitt uppdráttar í dag af því að fyrirgreiðsla af þessu tagi er ekki fyrir hendi? Ég held að þetta sé upplagt verkefni fyrir hv. þingnefnd að fara rækilega í gegnum því það getur ekki verið neitt sérstakt sem kallar á flýtimeðferð þessa máls.