131. löggjafarþing — 98. fundur,  22. mars 2005.

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins.

659. mál
[14:19]

viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu og þann áhuga sem hv. þingmenn sýna þessari starfsemi og reyndar skil ég mjög vel að svo sé. Ég get alveg upplýst hér að það var ekki fyrr en að mjög yfirveguðu ráði sem ég tók þá ákvörðun að leggja fram þetta frumvarp. Í raun sé ég svolítið eftir þessum möguleika og þeirri starfsemi sem boðið er upp á með þessum lögum, ekki þessu frumvarpi heldur lögunum eins og þau eru í dag.

Það er hins vegar þannig, eins og hv. þingmenn þekkja, að það er búið að gera þarna ákveðna tilraun. Eftirspurnin hefur ekki verið mikil, ég held að það sé óhætt að segja það. Ég ætla, með leyfi forseta, að lesa hér aðeins upp úr greinargerðinni. Þar stendur:

„Þannig bárust tryggingardeildinni sex formlegar umsóknir á árinu 2002, þar af var ein dregin til baka og fimm samþykktar. Á árinu 2003 bárust tryggingardeild útflutningslána níu umsóknir, tvær þeirra voru dregnar til baka, fjórum var hafnað og þrjár samþykktar. Á árinu 2004 bárust tryggingardeildinni fjórar umsóknir og voru þrjár þeirra samþykktar. Á árinu 2002 var ein ábyrgð gefin út, sex ábyrgðir voru gefnar út á árinu 2003 og þrjár á árinu 2004. Varð allnokkurt tap af fjárfestingarverkefnum deildarinnar á árunum 2000, 2001 og 2002 en smávægilegur hagnaður á árinu 2003. Tekjur tryggingardeildarinnar af þessum verkefnum hafa því verið litlar sem engar og ekki staðið undir starfsemi deildarinnar.“

Þetta er sannleikurinn sem við stöndum frammi fyrir um þessa starfsemi og samstarfsaðilar okkar frá árinu 2002 hafa metið málið þannig að ekki sé ástæða til að halda áfram með starfsemina og eru ekki tilbúnir að leggja fjármagn í það, enda hafa þeir lagt fjármagn í tryggingarsjóð útflutningsgreina á móti ríkinu eins og hér hefur komið fram.

Þess vegna er þetta mál fram komið. Að sjálfsögðu verður fjallað um það í nefnd en niðurstaða ráðuneytisins varð sú að það væri ekki um annað að ræða en bara að hætta þessu. Það mál var að sjálfsögðu rætt í ríkisstjórn. Fleiri ráðuneyti koma að þessu, m.a. utanríkisráðuneyti og sjávarútvegsráðuneyti, og þetta var sem sagt sameiginleg niðurstaða.