Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins.
Lúðvík Bergvinsson (Sf) (andsvar):
Virðulegi forseti. Það má kannski til sanns vegar færa þegar verið er að tala um lítið umfang að umsóknir sem ekki ná tveggja stafa tölu séu ekki margar. En það verður líka að líta til þess að eftir því sem ég best veit er ekki nema um einn starfsmann að ræða og að þetta séu framlög fjögurra samstarfsaðila upp á tvær millj. kr. á ári hvers. Þessi eini starfsmaður, starfsemi hans og tilvist sjóðsins virðist hafa tryggt útflutningsverðmæti upp á 1,1 milljarð á þessum tveimur árum, 2003 og 2004. Mér finnst það bara vera veruleg réttlæting fyrir því að viðhalda svona starfsemi ef sá er árangur undanfarinna tveggja ára, þ.e. frá því að faglegri vinnubrögð voru tekin upp. Mér finnast rök hæstv. ráðherra ekki mikil. Ég er sannfærður um að við færum létt með það að finna einhver störf hjá ríkinu sem mætti skera af sem skiluðu ekki jafnmiklum eða sambærilegum árangri, og ekki einu sinni í líkingu við það sem þetta skilar.
Ég er smám saman, virðulegi forseti, að komast frekar á það að við eigum að gefa þessari starfsemi meiri tíma. Að minnsta kosti vantar miklu betri rök frá hæstv. ráðherra til að sannfæra þann sem hér stendur.
Hvað síðan varðar aðra möguleika, þ.e. á lánastarfsemi og lánafyrirgreiðslu, er hér um allt öðruvísi fyrirbæri að ræða. Hér erum við að tala um rekstur á tryggingardeild vegna útflutnings til svæða sem kannski skortir pólitískan og efnahagslegan stöðugleika til að skapa nýja markaði. Ég tel að við þurfum að skoða þetta mál mjög vandlega og kalla fyrir efnahags- og viðskiptanefnd forsvarsmenn þeirra fyrirtækja sem hafa nýtt þessa deild (Forseti hringir.) og fara mjög vandlega yfir það með þeim hvort þeir telji ástæðu til að leggja hana niður.