Varnarviðbúnaður við eiturefnaárás.
Fyrirspyrjandi (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):
Virðulegi forseti. Ég verð að taka undir gagnrýni hv. þm. Jóhanns Ársælssonar, að það er í sjálfu sér undarlegt að einmitt nú, ári frá því að skýrslan lá fyrir í þessu mikilvæga almannahagsmunamáli þar sem tillögur eru fram komnar um hvernig eigi að bregðast við hættum vegna hugsanlegrar notkunar á sýkla-, efna- eða geislavopnum, skuli ekki komnar fram greinargóðar tillögur um hvernig eigi að bregðast við og í hvaða ferli slíkt mál eigi að fara. Sú töf er gagnrýnisverð og undarlegt að efni skýrslunnar skyldi ekki kynnt með afgerandi hætti á sínum tíma.
Af hverju þarf nánast að toga það út úr ráðherranum í fyrirspurnatíma á þinginu hver grundvallarniðurstaða skýrslunnar var? Því fer auðvitað fjarri að tæmandi úttekt á niðurstöðum hennar hafi komið fram í svari ráðherra. Það er ástæða til að skora á hann að spretta úr spori í þessu máli, aflétta þögninni yfir þessari skýrslu. Það er sjálfsagt mál að fyrir liggi hvernig stjórnvöld hyggjast bregðast við og hvaða ferli stjórnvöld ætla að koma upp við slíkar aðstæður. Hvernig yrði viðbragðsáætlun virkjuð? Hvernig á að standa að þjálfun manna og samstarfi stofnana? Hvernig tækjabúnaður þarf að vera til staðar hjá slökkviliðum landsins og öðrum almannavarnastofnunum? Hvernig á almenningur almennt að líta á þetta mál? Það er mikilvægt að eftir þessa löngu bið komi vel ígrundað ferli fyrir slíkar viðbragðsáætlanir.
En það er ánægjulegt að ráðherra hafi þó upplýst um grundvallaratriði skýrslunnar sem verða tekin fyrir á næstunni við endurskoðun á almannavarnalögum.