131. löggjafarþing — 100. fundur,  31. mars 2005.

Gæðamat á æðardúni.

670. mál
[13:50]

Sigurjón Þórðarson (Fl) (andsvar):

Herra forseti. Við lestur frumvarpsins finnst mér ekki koma fram hvert markmið þess er. Hvaða upphæðir er verið að verja? Hvaða almannahagsmuni er verið að verja með frumvarpinu? Maður áttar sig ekki á því hvað liggur að baki. Ég tel einnig að menn verði að velta fyrir sér að verið er að tala um innanlandsmarkað. Við erum á Evrópska efnahagssvæðinu. Hefur sú hlið á málinu verið skoðuð hvort við getum gert einhverjar sérstakar kröfur? Hvaða almannahagsmuni er verið að verja með því að fara í þessa löggjöf?