Gæðamat á æðardúni.
landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson) (F) (andsvar):
Hæstv. forseti. Æðarbændur eru líklega hátt í 400. Þetta er sérstök vara sem er framleidd á Íslandi undir ströngu eftirliti og fer inn á heimsmarkað, er mikið seld til Þýskalands og Japans. Þeir sem kaupa vöruna gera miklar kröfur um öruggt gæðamat, þannig að þaðan hefur sú krafa komið.
Ég fór vel yfir það í minni stuttu ræðu að komið hefði athugasemd frá ESA vegna þess að ekki væri jafnræði á milli markaðarins innan lands og þess sem væri selt á erlendan markað. Farið hefur verið vel yfir þetta í nefndinni sem var ekki bara skipuð hagsmunaaðilum heldur kom Félag íslenskra stórkaupmanna einnig að málinu. Það hefur verið vel farið yfir það sem hv. þingmaður spurði um. Við breytinguna stenst málið alla þá samninga sem við höfum gert á Evrópska efnahagssvæðinu. Æðardúnsbændur hafa því rétt á að skipa málum sínum með þessum hætti ef þingið styður þá í löggjöfinni.