Gæðamat á æðardúni.
Magnús Þór Hafsteinsson (Fl) (andsvar):
Virðulegi forseti. Við ræðum stutt frumvarp til laga um gæðamat á æðardúni, lagt fram af hæstv. landbúnaðarráðherra. Mér sýnist að frumvarpið ætti frekar að heita Frumvarp til laga um dúnmatsmenn því í hinum stutta lagatexta eru dúnmatsmenn nefndir að ég tel fimm sinnum en aðeins er minnst tvisvar sinnum á æðardún.
Talað er um að æðardúnn eigi að standast gæðamat dúnmatsmanna með vottorði. Þá langar mig að spyrja: Hvaða skilyrði eiga að fylgja gæðamatinu? Talað er um að gefa út leyfi til handa dúnmatsmönnum. Þá spyr ég: Hvaða kröfur verða gerðar til dúnmatsmanna til að mynda varðandi menntun? Hvaða hæfniskröfur verða gerðar til þeirra? Hvað felst í starfinu? Mér finnst það hvergi koma fram í frumvarpinu, hvorki í lagatextanum né skýringum með frumvarpinu.
Einnig langar mig til að spyrja nokkurra spurninga varðandi kostnað. Í 3. gr. stendur, með leyfi forseta:
„Kostnaður af störfum þeirra“ — þ.e. dúnmatsmanna — „greiðist af matsbeiðanda í samræmi við gjaldskrá sem ráðuneytið staðfestir.“
Mig langar að heyra eitthvað frá hæstv. ráðherra um hvort hann hafi hugleitt hversu mikill sá kostnaður eigi að vera og hvernig gjaldskráin eigi að líta út.
Í 3. gr. stendur líka, með leyfi forseta: „Dúnmatsmenn skulu undirrita eiðstaf áður en þeir taka til starfa.“ Því langar mig að lokum að spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig hljóðar eiðstafurinn?
Hæstv. ráðherra hlýtur að hafa hugsað fyrir öllum þessum þáttum áður en hann settist niður og skrifaði þetta ágæta frumvarp þó að það sé reyndar bæði stutt og frekar þunnt, alla vega við fyrstu augnasýn.