131. löggjafarþing — 100. fundur, 31. mars 2005.
Gæðamat á æðardúni.
670. mál
[14:03]
Einar Oddur Kristjánsson (S) (andsvar):
Herra forseti. Mér er vel kunnugt um að það er fullt af skrýtnu fólki sem notar náttúruvernd sem yfirvarp fyrir alls konar skrýtin sjónarmið og meiningar. En ég sé ekki að það komi þessu máli neitt við. Ég sé ekki heldur að EES komi þessu máli neitt við.
Ég spurði bara: Hvers vegna þarf slíka löggjöf? Hvaða nauð rekur okkur til þess? Hví ættu þessir framleiðendur ekki, eins og allir aðrir framleiðendur, að meta og vega hvað sé þeim hagkvæmast á hverjum tíma í hvert skipti?