131. löggjafarþing — 100. fundur,  31. mars 2005.

Stjórn fiskveiða.

239. mál
[16:49]

Magnús Þór Hafsteinsson (Fl):

Virðulegi forseti. Nú er rædd breyting á lögum um stjórn fiskveiða. Við erum alltaf að líma endalausar skóbætur á þessi blessuðu lög nr. 38 frá árinu 1990. Hér er á ferðinni enn ein skóbótin eða enn ein viðbótin sem gerir þennan lagabálk enn flóknari en orðið er og þykir nú mörgum nóg um.

1. gr. I. kafla laganna, almenn ákvæði, hljóðar svo nú, með leyfi forseta:

„Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.“

Hér vilja menn sem sagt bæta við, með leyfi forseta:

„Við úthlutun veiðiheimilda og stjórn veiða skal á hverjum tíma taka mið af bestu þekkingu sem til er um afrakstursgetu veiðistofna, áhrif veiða á einstökum tegundum á viðkomu annarra tegunda og á vistkerfi hafsins í heild og mismunandi áhrif veiðarfæra á vistkerfi hafsins og viðkomu fiskstofna. Jafnframt skal við úthlutun veiðiheimilda og stjórn veiða taka mið af þjóðhagslegri hagkvæmni af nýtingu einstakra veiðistofna.“

Hér verð ég að segja að ekki skortir nú á metnaðinn hjá flutningsmönnum þessa frumvarps því hér er í raun og veru, finnst mér alla vega, verið að ganga út frá því að við búum yfir vitneskju almættisins um veiðistofna, áhrif veiða og annað þess háttar. Ég fæ ekki betur séð, virðulegi forseti, þegar ég les greinargerðina með þessu frumvarpi eða réttara sagt þegar ég les 2. gr. þar sem talað er um að það eigi að setja álag allt að 10% á tiltekin veiðarfæri sem einnig er mjög illa skilgreint hér, að mér þykir — þ.e. þegar ég les greinargerðina fæ ég ekki betur séð en að flutningsmenn frumvarpsins mæti á vissan hátt sjálfum sér í dyrunum því þeir viðurkenna það hreinlega berum orðum að við búum yfir afskaplega lítilli vitneskju um þá hluti sem við í raun ætlum okkur að taka á með þessu frumvarpi. Þeir tala til að mynda um að við búum yfir mjög lítilli vitneskju um veiðarfæri og að rannsóknum þar hafi hvergi verið nægilega vel sinnt fram til þessa. Samt sem áður koma þeir með þetta frumvarp þar sem ætlunin er einmitt að fara að stunda þessa veiðarfærastýringu.

Mér hefði nú þótt nær að menn hefðu fyrst gert gangskör í því að taka á þessum málum, þ.e. útvega okkur betri þekkingu um veiðarfæri, um vistkerfi hafsins og þar fram eftir götunum áður en við færum að setja svona lög, þannig að við vissum meira um hvað við værum að fara að gera.

Það er að sjálfsögðu alveg hárrétt að það er okkur Íslendingum til háborinnar skammar hversu lítið við höfum sinnt almennilegum grundvallarhafrannsóknum og veiðarfærarannsóknum marga undanfarna áratugi. Veiðarfærarannsóknir hafa nánast legið hér niðri, nánast segi ég, ekki alveg en nánast um margra ára skeið og orðið okkur til stórtjóns. Enginn vafi leikur því.

Ég lýsi mig andvígan þessu frumvarpi, ekki vegna þess að ég sé andvígur því að við eigum að stunda veiðarfærastýringu. Hins vegar tel ég að frumvarpið sé í eðli sínu slíkt að það sé ekkert annað en framhald á þeim vitleysisgangi sem kvótakerfið er í eðli sínu. Eins og hv. þm. Jón Gunnarsson benti hér á réttilega áðan þá hafa ótal breytingar verið gerðar á lögum um stjórn fiskveiða frá því að þau voru sett árið 1990. Það er alltaf verið að gera breytingar. Margar á hverju ári. Þetta frumvarp er í raun bara framhald á þeirri vitleysu sem mér finnst að sé löngu kominn tími til að stöðva.

Lokaorð hv. þm. Jóns Gunnarssonar fengu mig reyndar til að efast um hvort þetta frumvarp væri sett fram í fullri alvöru, þ.e. til að breyta þessum lögum því mér heyrðist svona á honum, alla vega svona á tóninum, að hann væri öðrum þræði að meina að menn væru að leggja þetta frumvarp fram til að skapa umræðu, til að fá menn til að hugsa sinn gang og velta hlutunum fyrir sér, bæði okkur stjórnmálamönnum og hagsmunaaðilum í sjávarútvegi. Það er í sjálfu sér ekki nema gott eitt um það að segja. Ég tel að eitt af því sem Alþingis getur gert til að sýna aðhald sé einmitt að hvetja til þess að fram fari málefnaleg og upplýst umræða um þjóðfélagsmál á hverjum tíma. Ég vona svo sannarlega að við séum að gera það með störfum okkar á þingi. En þá hefði kannski frekar átt að leggja þetta mál fram sem þingsályktunartillögu en ekki sem frumvarp.

Það er alveg rétt að hægt er að ræða vel og lengi um sjávarútvegsmál, stjórn fiskveiða og annað þess háttar. Við erum svo sem að gera það oft og títt í þessum sal. Veiðarfærastýring, já, það er alveg rétt að sum veiðarfæri eru vistvænni en önnur. Það er líka alveg rétt að dregin veiðarfæri eins og t.d. troll geta valdið tjóni. Þungir toghlerar geta líka valdið tjóni. Það er enginn vafi á því. Þetta höfum við vitað í marga áratugi. (Gripið fram í.) Við höfum vitað þetta í marga áratugi. Hins vegar er það líka þannig að þessi veiðarfæri — ég sagði að þau geti valdið tjóni en þau þurfa ekki að valda tjóni. Það fer að sjálfsögðu eftir botngerð og lífríki á botninum á hverjum tíma hversu mikið umhverfistjón verður þegar þessi veiðarfæri eru notuð. Þar skiptir líka máli spurning um þekkingu. Hvar henta þessi veiðarfæri og hvar henta þau ekki? Við hvaða aðstæður getum við leyft okkur að nota þau og við hvaða aðstæður er síðan vafasamt að nota þau?

Ef við ætlum að fara út í veiðarfærastýringu með þessum hætti þá tel ég ekki rétt að beita svona álagi, 10% álagi, og segja svo: „Allt í lagi, þið megið nota þessi veiðarfæri. En þið verðið þá bara að sætta ykkur við að það verður dregið af ykkur 10% meira af kvótanum heldur en ef þið notuðuð eitthvað annað.“ Svo færu menn að draga þessi veiðarfæri undir þessum skilyrðum, 10% álagi, á svæðum sem væru viðkvæm fyrir togveiðum, til að mynda á kóralsvæðum. Skaðinn væri skeður. Það getur vel verið að fiskiríið á svona slóðum væri það gott að það réttlætti bæði veiðarfæratap og líka 10% álag á kvótann, menn mundu samt láta sig hafa það að fara á þessi svæði og eyðileggja lífríkið.

Ég hygg að það væri miklu vænlegri leið að beita svæðatakmörkunum á ákveðnar veiðarfæragerðir, að ákveðnum svæðum væri hreinlega lokað t.d. fyrir togveiðum. Ef menn eru að hugsa um botndýralíf og botngerð þá væri miklu gáfulegra að loka slíkum svæðum alfarið fyrir dregnum veiðarfærum en leyfa mönnum þó áfram að nota kyrrstæð veiðarfæri. Frændur okkar Norðmenn hafa gert þetta, t.d. á kóralsvæðunum við Noreg mörg undanfarin ár. Þeir hafa lokað þeim hreinlega fyrir dregnum veiðarfærum, þ.e. botnvörpu, en leyfa áfram notkun á kyrrstæðum veiðarfærum og þá einkum og sér í lagi línu sem veldur litlum eða engum skaða á lífríki botnsins.

Færeyingar hafa beitt svipuðum aðgerðum. Þeir banna allar togveiðar fyrir innan 12 mílur, ganga bara hreinlega til verks. Ég tel að mörgu leyti að það sé einnig til fyrirmyndar. Það virðist ganga mjög vel hjá þeim. Ég heyri og sé ekki annað þegar ég lít til Færeyja en að sátt ríki um það og að þar séu allir á því að þetta hafi verið mjög skynsamleg ákvörðun á sínum tíma. Togveiðar eru einungis leyfðar í ákveðnum fyrir fram skilgreindum hólfum og annars staðar ekki fyrir utan 12 mílurnar. Ég fæ ekki betur séð en að það sé líka sátt um þetta.

Svo við tölum áfram um Færeyinga þá er þar líka mjög útbreitt að menn noti í staðinn fyrir einn togara sem togar og þarf því á toghlerum að halda til að halda skveringu — þ.e. til þess að trollið haldist opið á meðan það er í drætti — þá er töluvert algengt þar að menn noti tvö skip til að toga eitt troll í staðinn fyrir eitt. Þar með losna þeir við að nota toghlera. Það dregur að sjálfsögðu úr áníðslu á botninum. Toghlerar dagsins í dag um borð í skuttogurum geta verið mjög stórir, gríðarlegir hlemmar, þungir og miklir, sem dröslað er á eftir þessum skipum sem búa yfir mjög miklu vélarafli. Trollin eru að sama skapi mjög stór og útbúin svokölluðum grjóthoppurum sem eru sívalir gúmmíhlunkar á fótreipi eða við fótreipi botnvörpunnar. Þetta getur að sjálfsögðu valdið töluvert miklu raski á botni, til að mynda hörðum botni og hefur án efa orðið til skaða fyrir lífríkið. Maður hefur í raun séð það af neðansjávarmyndum sem hafa verið teknar af þessum veiðarfærum, að sjálfsögðu ekki af okkur því við erum náttúrlega bölvaðir skussar í öllum veiðarfærarannsóknum og höfum verið um margra áratuga skeið eins og ég hef bent á og er það okkur til háborinnar skammar. En frændur okkar Skotar t.d. hafa myndað svona veiðarfæri þar sem þau hafa farið eftir botninum. Þeir gerðu það fyrir mörgum áratugum. Þær myndir eru ekkert sérstaklega falleg sjón. Það verður að segja það alveg eins og er.

Virðulegi forseti. Heilt á litið segi ég enn og aftur að mér hugnast þetta frumvarp ekki, einfaldlega vegna þess að mér finnst það vera enn ein skóbótin á kvótakerfið og ég er á móti kvótakerfinu, það er ekkert flóknara en það. Því hygg ég, án þess að hafa rætt það neitt sérstaklega við félaga mína í þingflokki Frjálslynda flokksins, að okkur hugnist frumvarpið ekki þó við séum að sjálfsögðu hallir undir veiðarfærastýringar, en að við beitum þeim samhliða svæðastýringum ef svo má segja með þeim hætti að tiltekin veiðarfæri, sérstaklega dregin veiðarfæri eins og botnvarpa, séu eingöngu leyfð á þeim svæðum þar sem við teljum að botngerðin, botndýralífið þoli slíka áníðslu. Þá er ég einkum og sér í lagi að tala um botn, mjúkan botn, sandbotn, leirbotn og þannig lagaða botngerð.

Það á að vera tiltölulega auðvelt í dag að kanna botngerð. Hafrannsóknarskipið okkar nýja, Árni Friðriksson, sem reyndar er bundið við bryggju stærstan hluta ársins vegna þess að við tímum ekki að gera það út, er búið fullkomnum fjölgeislamæli sem getur kannað botngerð að því er ég best veit. Sé sá mælir ekki hentugur til þess einn og sér er hægt að beita öðrum ráðum til að rannsaka botngerð. Ég minni líka á að nýlega gaf Landssamband íslenskra útvegsmanna fullkomna myndavél til rannsóknaraðila hér á landi. Hafi þeir bestu þökk fyrir það. Það var mjög þarft og gott framtak sem og að sjálfsögðu rannsóknarskipið, en veglegar gjafir eins og þessar gera náttúrlega kröfu um að stjórnvöld í landinu, framkvæmdarvaldið, sjái sóma sinn í því að útvega fjármagn svo hægt sé að nýta tækin þjóðinni til heilla og framfara þannig að við vitum meira um hvernig við eigum að gera hlutina og tryggjum að við séum að gera þá rétt.