131. löggjafarþing — 100. fundur,  31. mars 2005.

Stjórn fiskveiða.

239. mál
[17:09]

Magnús Þór Hafsteinsson (Fl) (andsvar):

Virðulegi forseti. Besta vitneskja á hverjum tíma. Í 1. gr. stendur, með leyfi forseta: „Við úthlutun veiðiheimilda og stjórn veiða skal á hverjum tíma taka mið af bestu þekkingu sem til er um afrakstursgetu veiðistofna.“ Gott og vel. Við ætlum að nota bestu vitneskju sem við höfum á hverjum tíma til að setja álag á ákveðin veiðarfæri og setja á allt að 10% álag.

Lítum á þetta þannig að ef við ætlum að stjórna veiðum með þeim hætti að fara í þessa aðferðafræði, tökum til að mynda humarveiðar sem hv. þingmaður nefndi áðan; gildruveiðar eða dregnar veiðar. Af hverju væri ekki miklu betra að ganga hreint til verks og segja sem svo að humarveiðar skuli bara stundaðar í gildrur? Væri ekki miklu hreinlegra að banna alfarið togveiðar á humri ef menn hafa áhyggjur af því að verið sé að skemma umhverfið með dregnum veiðarfærum við humarveiðar? Það mætti alveg líta á það þannig. Hugsanlega væri það skynsamlegt, hver veit? Við Skotland veiða menn humar í gildrur. Hér gera menn það ekki. Humarinn er mjög háður botngerð. Við vitum að dregin veiðarfæri eyðileggja sennilega búsvæði humarsins. Hvers vegna skyldum við þá ekki gera þetta svona með hreinum hætti?

Ég tel, eins og ég sagði áðan, að miklu vænlegra væri að banna dregin veiðarfæri á ákveðnum svæðum en að setja á svona álag.