Stjórn fiskveiða.
Magnús Þór Hafsteinsson (Fl) (andsvar):
Virðulegi forseti. Það skal ekki standa á mér að lesa frumvarpið fram og til baka. Ég taldi mig reyndar vera búinn að því og fór í gegnum það og lýsti því efnislega áðan hvers vegna ég væri á móti hugsunarhættinum á bak við frumvarpið. Ég tel einfaldlega að það væri miklu skárra að beita veiðarfærastýringum og er fylgjandi því að við beitum þeim. Ein af þeim breytum sem við getum notað til að stunda skynsamlega fiskveiðistjórnun er að beita veiðarfærastýringum, þ.e. að ákveða hvaða veiðarfæri megi nota og á hvaða svæðum. Ég tel einfaldlega að það sé miklu, miklu vænlegra til árangurs til að koma í veg fyrir umhverfistjón af völdum til að mynda dreginna veiðarfæra. Ef við vitum um svæði þar sem botn er viðkvæmur bönnum við einfaldlega togveiðar á þeim svæðum. Það er ekkert flóknara en það.
Það er eiginlega fyrst núna sem við vitum eitthvað um þessi svæði. Rannsóknir við Ísland eru rétt nýhafnar á því hvar kórall er. Hafrannsóknastofnun er rétt nýbyrjuð að rannsaka þetta og það var bara núna í vetur sem fyrstu neðansjávarmyndirnar voru sýndar af veiðisvæðum þar sem menn höfðu fundið kóralsvæði og þær myndir voru mjög sláandi. Ég man eftir myndum af Öræfagrunni þar sem búið var að rústa öllum kóral og einungis molar voru eftir, en svo eru líka enn til svæði þar sem kórall var heill og menn gátu sýnt og sannað það með myndum. Á slíkum svæðum á skilyrðislaust að banna togveiðar og gera það strax.
Sjómenn hafa líka látið Hafrannsóknastofnun í té upplýsingar um bleyður þar sem þeir vita að kórall hefur verið og búið er að setja þær bleyður á kort. Það kort fylgir m.a. ágætu máli sem þingflokkur Vinstri grænna hefur mælt fyrir á þingi, þingsályktunartillögu sem liggur hjá sjávarútvegsnefnd og ég hvet hv. þm. Jón Gunnarsson til að kynna sér það, reyndar reikna ég með að hann hafi gert það.