Umræða um málefni Ríkisútvarpsins.
Jón Gunnarsson (Sf):
Frú forseti. Ég hafði ekki hugsað mér að blanda mér í umræðu um fundarstjórn forseta en hér kom upp áðan hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson og óskaði eftir því að menntamálanefnd yrði kölluð saman og að þingfundum yrði frestað. Ég hef ekki heyrt hæstv. forseta segja neitt um hvort það komi til greina að fresta þingfundum meðan menntamálanefnd kemur saman og fer yfir þetta mál.
Í raun þurfa menn ekki að vera hissa á þessari umræðu. Hér er kallað eftir hæstv. forsætisráðherra til að vera til svara um málið sem nú er rætt. En það er eins og oft áður á Alþingi, að menn fara í kringum hlutina eins og kettir í kringum heitan graut og tala um að hér eigi menntamálaráðherra að vera til svara þegar allir vita að það er ekki menntamálaráðherra sem málið snýst um heldur eru það aðgerðir hæstv. forsætisráðherra og Framsóknarflokksins í þessu máli sem við viljum ræða. Það er eðlilegt að kalla eftir því að formaður Framsóknarflokksins, hæstv. forsætisráðherra, komi og svari þinginu um þetta mál.
En ég sakna þess að forseti svari því hvort til greina komi að fresta fundum þingsins og óska eftir svari um það.