131. löggjafarþing — 101. fundur,  1. apr. 2005.

Umræða um málefni Ríkisútvarpsins.

[14:04]

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Frú forseti. Ég tek undir með ræðumanni sem hér talaði áðan og hrósaði forseta fyrir fundarstjórnina. Ég geri það líka þótt ég vilji að vísu halda því til haga að það tíðkast, og er löng hefð fyrir því, að túlka eða beita þingsköpunum dálítið með hliðsjón af aðstæðum hverju sinni. Þegar aðstæður eru þær sem raun ber vitni finnst mér að forseti eigi að vera umburðarlyndur og sveigjanlegur þó að menn sjái sig knúna til að ræða þá stöðu sem uppi er í þessu máli og varðar mjög vinnu þingsins í margvíslegum skilningi. Bæði hefur Alþingi fengið það ákall sem hér hefur verið vitnað til og síðan snýst málið um það hvaða stöðu, rétt og möguleika við þingmenn höfum og þingið hefur til að halda framkvæmdarvaldinu við efnið. Það er fullkomlega óþolandi að hæstv. ráðherrar komist hjá því að standa ábyrgir gerða sinna og svara fyrir þær við svona aðstæður.

Forseti þingsins hefur þá skyldu einnig að halda hæstv. ráðherrum við efnið. Ráðherrar hafa þingskyldur og þeim ber að rækja þær. Það er ekki endilega þannig að það skuli taka það gott og gilt að það komi skilaboð frá ráðherrum um að þeir séu annars staðar. Hvar eru þeir? Hvað er svona mikilvægt? Hvað þolir ekki þá bið að ráðherrar geti ekki komið í þingsal þegar óskað er viðveru þeirra og af hverju gegna þeir ekki þingskyldum sínum eins og aðrir?

Við aðstæður sem þessar gengur það ekki að framkvæmdarvaldið geti sjálft tekið sér það vald að ákveða hvort og hvenær umræður um mikilvæg mál fara fram. Við reynum að beita þeim heimildum og tækjum sem við höfum, t.d. að nota okkur þann möguleika sem minni hluti á til að setja mál á dagskrá á fundum þingnefnda. Minna má það ekki vera en að forusta þingsins standi með þinginu og þingmönnum í að þeir geti þó a.m.k. beitt lögbundnu úrræðum sínum, sem eru bundin í þingsköpunum og fólgin í hefðum.

Það á að heita svo, virðulegur forseti, að það sé þingbundin ríkisstjórn á Íslandi. Það stendur reyndar í 1. gr. stjórnarskrárinnar, þótt maður fari stundum að efast um að innstæður séu fyrir því að á Íslandi sé lýðveldi með þingbundinni ríkisstjórn. Núverandi ríkisstjórn hefur margsannað sig í því að hún heldur að þetta sé öfugt, að það sé ríkisstjórnarbundið, múlbundið þing. Henni nægir ekki að reyna að valta yfir Alþingi heldur gerir hún að auki skipulagða tilraun til valdaráns í einni mikilvægustu lýðræðis- og menntastofnun þjóðarinnar, Ríkisútvarpinu. Það varð m.a. deginum ljósara á þessum morgni þegar (Forseti hringir.) áformin, undirbúningurinn og skipulagið sem nýi fréttastjórinn tók með sér inn á fund í morgun kom í ljós. (Forseti hringir.)

Það er því ekki lítið undir hér, herra forseti, og von að mönnum sé heitt í hamsi.