131. löggjafarþing — 102. fundur,  4. apr. 2005.

Sala Símans, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[16:30]

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Það er skoðun okkar í Frjálslynda flokknum og var ítrekað á landsþingi flokksins nýverið að Símann ætti ekki að selja með grunnnetinu. Sú varð niðurstaða okkar og skilyrði að ef við í Frjálslynda flokknum ættum að samþykkja að Síminn væri seldur yrði dreifikerfið aðskilið, það yrði algjörlega aðskilið við þá sölu og yrði áfram í eigu ríkisins. Þannig yrði í raun tryggður aðgangur allra fyrirtækja sem störfuðu á þessum markaði að dreifikerfinu og þannig yrði í raun tryggð samkeppni.

Ég hef a.m.k. skilið það svo, hæstv. forseti, að í stefnumótun ríkisstjórnarinnar á sínum tíma hafi verið markmiðið að tryggja samkeppni með því að selja Símann, jafnframt því auðvitað að ná inn fjármunum í eitt skipti til ríkissjóðs. Ég segi í eitt skipti, hæstv. forseti, vegna þess að ríkissjóður hefur vissulega fengið fjármuni á hverju ári undanfarið, verulega fjármuni, í ríkiskassann af arði frá Símanum. Ef ég veit rétt er á þessu ári gert ráð fyrir að Síminn greiði 6,5 milljarða til ríkisins.

Í þeirri yfirlýsingu sem hér er látin fylgja með frá ríkisstjórninni í minnisblaði er talað um að áður en Síminn verði seldur verði hugsanlega notaðar — ja, á blaðinu stendur 900 milljónir og 150 milljónir, þ.e. rúmur milljarður, 1/6 af hagnaði þessa árs, til þess að efla dreifikerfið. Ekki höfum við svo sem á móti því í Frjálslynda flokknum að dreifikerfið sé eflt, að landsbyggðin sitji sem best við sama borð og að allir landsmenn hafi full not af dreifikerfinu en það eru ekki litlir peningar að fá á hverju ári 3–6 milljarða í arð af fyrirtæki sem ríkið á. Kann vel að vera að hægt sé að ná meiri fjármunum út úr fyrirtækinu með breyttum rekstri en það eru þá líka alveg örugglega þegnar þjóðfélagsins, við Íslendingar, sem borga brúsann. Og skyldi það ekki verða svo að ef menn fara þá leið sem hér er boðuð muni notendurnir greiða? Örugglega. Örugglega munu þeir greiða þeim til baka sem eignast fyrirtækið. Þannig hefur reyndin verið í framkvæmd einkavæðingar á undanförnum árum.

Við veltum því virkilega fyrir okkur hvernig menn ætli að tryggja samkeppnina þegar dreifikerfið er í eigu eins aðila. Ég held að allir hljóti að sjá að það muni ekki reynast farsælt. Eða spyrja má: Hvers vegna setja menn upp sérstakt landsnet fyrir raforkuna en horfa ekki sömu augum á það að tryggja samkeppni varðandi fjarskiptafyrirtæki?

Ég velti fyrir mér eins og fleiri þingmenn sem hafa komið í þennan ræðustól hvort verið sé að sérhanna eitthvað í því söluferli sem nú er sett upp. Er verið að tryggja með breyttu fyrirkomulagi sölunnar að einhverjir sérstakir hópar nái að fjárfesta í þessu fyrirtæki? Hvernig ætla menn að koma í veg fyrir samráð tveggja fyrirtækja sem núna eru ráðandi á þessum markaði? Það hefur ekki tekist í öðrum rekstri, það tókst ekki hjá olíufélögunum að tryggja eðlilega samkeppni og það er mjög hæpið að það verði tryggt á þessum markaði eins og hann er upp settur með því söluferli sem hér er gert ráð fyrir.

Við í Frjálslynda flokknum höfnum því að þessi leið verði farin. Við leggjum til að grunnnetinu verði haldið sér, því verði haldið í sérfyrirtæki í eigu ríkisins og að allir fái opinn aðgang að því kerfi. Ef sú staða kæmi upp mundum við ekki leggjast gegn sölu Símans.