131. löggjafarþing — 104. fundur,  6. apr. 2005.

Þekkingarsetur á Egilsstöðum.

687. mál
[14:19]

Þuríður Backman (Vg):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Katrínu Ásgrímsdóttur fyrir að taka upp þetta mál og hreyfa við því. Eins þakka ég hæstv. menntamálaráðherra fyrir þau svör sem hér hafa komið fram, þ.e. að þegar hefur verið ákveðið að stofna starfshóp til að vinna að framgöngu þessa máls, og þótt fyrr hefði verið reyndar.

Þetta er ágætt mál, þekkingarsetur á Egilsstöðum, þær hugmyndir sem fram hafa komið og menn tekið vel undir vegna mikilla möguleika á að efla menntun og rannsóknir á svæðinu, en vandamálið hefur verið að mörg ráðuneyti koma að því, þ.e. fjármálaráðuneyti, menntamálaráðuneyti, iðnaðarráðuneyti, landbúnaðarráðuneyti, félagsmálaráðuneyti — og hver átti að taka af skarið?

Ég þakka hæstv. menntamálaráðherra fyrir að taka af skarið og koma vinnu í gang. Þó að hugmyndin að háskólasetrinu (Forseti hringir.) lúti að hluta til að nettengingum þarf þessi starfsemi eftir sem áður húsnæði.