131. löggjafarþing — 104. fundur,  6. apr. 2005.

Heimasala afurða bænda.

636. mál
[15:21]

Ásta R. Jóhannesdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Það er löngu ljóst að rýmka þarf reglur til þess að bændur geti selt sínar afurðir beint af búum sínum.

Ég vil nefna hérna sauðaosta t.d. Það er alveg ótrúlegt. að við sem erum með allt þetta sauðfé hér á landi skulum ekki búa til sauðaosta sem eru ákaflega eftirsóttir í Evrópu.

Í síðustu viku töluðum við fyrir ferðamálastefnu og vorum að ræða þar ýmis sóknarfæri. Þarna eru vissulega sóknarfæri í afurðum sem eru seldar beint hjá bændum og það á að gera líka bændum kleift að veita ferðamönnum af hinum ýmsu afurðum sem þeir eru með. Ég vil taka undir þetta með vínin, berjavín, berjalíkjöra og hina ýmsu drykki sem bændur geta bruggað handa ferðamönnum, þ.e. að þeim verði gert það kleift því það er mjög mikilvægt í ferðaþjónustunni. Ég hvet hæstv. ráðherra að fara nú að rýmka reglurnar. Við tölum og tölum um þessi mál. Við gerðum það á síðasta þingi (Forseti hringir.) og erum að því enn. Nú er tími aðgerða.