131. löggjafarþing — 105. fundur,  6. apr. 2005.

Þróunarsjóður sjávarútvegsins.

387. mál
[16:11]

Forseti (Jóhanna Sigurðardóttir):

Forseti vill að gefnu tilefni taka fram að það er nauðsynlegt að þeir sem óska eftir að gefa atkvæðaskýringu geri það strax í upphafi en ekki þegar liðið er á atkvæðaskýringar annarra. Þetta hefur áður verið ítrekað úr forsetastóli.