Þróunarsjóður sjávarútvegsins.
Halldór Blöndal (S):
Frú forseti. Ég tel eðlilegt að eignir Þróunarsjóðsins falli til þess sem hann var stofnaður fyrir, til fiskirannsókna og hafrannsókna. Ég tel raunar að ekki veiti af og hélt að það væri almenn skoðun þingmanna, að þeir vildu ekki skerða það fé sem með mörkuðum tekjustofnum eða sjóðum hefur verið ákveðið að skuli renna til hafrannsókna.
Á hinn bóginn tel ég eðlilegt að styrkir til varðveislu gamalla skipa og báta séu ákveðnir í fjárlögum hverju sinni eins og gert hefur verið. Eins og ég sagði í fyrri ræðu minni hefur það verið gert mjög myndarlega á þessu ári og sérstakur samningur gerður um að svo skuli áfram, t.d. í Síldarminjasafni. Þar hefur verið staðið vel að verki til að styrkja menningarlegt framtak og söfn sem hafa vakið athygli út fyrir Íslandsstrendur.
Ég segi nei.