131. löggjafarþing — 105. fundur,  6. apr. 2005.

Þróunarsjóður sjávarútvegsins.

387. mál
[16:15]

Jón Bjarnason (Vg):

Frú forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um tillögu sem kveður á um að hluti af Þróunarsjóði sjávarútvegsins renni til varðveislu og verndar gamalla skipa í samræmi við þá þingsályktunartillögu sem Alþingi samþykkti einróma hér á sínum tíma.

Það er dapurlegt að verða vitni að því að þingmenn sem greiddu þessari tillögu atkvæði á sínum tíma skuli nú ekki vera meiri menn en svo að þeir ganga hér á bak orða sinna og staðfesta ákvörðunina ekki.

Frú forseti. Það er mikilvægt í fyrsta lagi að Alþingi standi við yfirlýsingar sínar og samþykktir og í öðru lagi að það verkefni sem hér er um að ræða fái til þess fjármagn. Þetta á ekkert skylt við það hvort Hafrannsóknastofnun þurfi aukið fé. Hún þarf aukið fé, hún er A-hlutastofnun á fjárlögum og á að fá sitt fjármagn í gegnum fjárlög. Til þess á meiri hlutinn að hafa myndugleika, ekki hefur skort tillögur minni hlutans hvað það varðar. Varðandi hugmyndir hæstv. forseta um það hvernig menn umgangast fjárlög þarf hann töluvert mikinn lærdóm enn til.

Ég segi já við þessari tillögu.