131. löggjafarþing — 106. fundur,  7. apr. 2005.

Skaðabótalög.

681. mál
[15:00]

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að lýsa yfir stuðningi mínum við þetta mál og þakka þeim í allsherjarnefnd fyrir að koma með það hér inn, þær nauðsynlegu lagfæringar sem stefnt er að að gera. Miklar vangaveltur hafa svo sem farið fram á milli manna um hvernig það mætti vera að bætur maka sem hefði látist væru reiknaðar til frádráttar hjá þeim sem eftir lifði og menn talið að engar skýringar væri á því að finna.

Ég tek fram að ég er sammála því að þessi regla sé óréttlát og eigi ekki að viðgangast. Hins vegar kann að vera að þannig hafi það verið metið við lagasetninguna 1999 að bætur til öryrkja væru það lágar að ef sá sem fyrir slysi hefði orðið hefði lifað það af og verið öryrki hefði maki haft af því óhagræði a.m.k. upp á 30% eða meira, þ.e. að bætur örorkuþegans hefðu engan veginn dugað honum til framfærslu og þar af leiðandi hafi menn komist að þeirri niðurstöðu að rétt væri að taka tillit til einhvers konar frádrags. Ég ímynda mér að þetta gætu hafa verið rökin, sem segir okkur eingöngu það að bæturnar eru eða voru það lágar að menn hefðu talið að þær dygðu ekki til framfærslu. Ég get ekki fundið neina aðra skýringu á því að menn skyldu yfirleitt setja þetta í lagatextann.

Ég held að hér sé um mikla réttarbót að ræða og mjög eðlilegt að þessar lagfæringar gangi fram og sjálfsagt að styðja þetta mál. Hins vegar var lýst eftir því af formanni allsherjarnefndar að æskilegt væri að fá fram umræður um málið og menn opnuðu á hugleiðingar og skoðanir um það til að skoða mætti þau atriði betur í allsherjarnefnd. Það er aðallega þess vegna sem ég er kominn upp í þennan ræðustól.

Hv. formaður allsherjarnefndar tók dæmi um örorkuþega sem missir handlegg og hvernig sá ávinningur er metinn til frádráttar — það er auðvitað ekki hægt að orða það sem ávinning heldur þær bætur sem viðkomandi ætti að fá vegna slyssins, og að hluti af þeim skuli dreginn frá við skaðabótakröfuna.

Ég hefði viljað spyrja að því sérstaklega, þegar menn fara að skoða þetta í allsherjarnefnd, hvort farið hefði verið yfir það nákvæmlega hvernig þessar frádráttarreglur eru fundnar og hvernig þær eru lagðar hver við aðra, ef hægt er að segja sem svo, miðað við lögin og reglurnar og einkum að því leyti til sem varðar það að sá sem fyrir örorkunni verður er kannski metinn þegar frá líður þannig að hann geti stundað einhverja vinnu og jafnvel aflað sér einhverra tekna. Mér er hins vegar ekki ljóst og vil víkja að því hvort við það mat sem ef til vill getur komið öryrkjanum til góða í nýjum tekjum í framtíðinni, þrátt fyrir örorku sína vegna slyssins, sé þá jafnframt metið inn að viðkomandi örorkulífeyrisþegi þurfi að endurmennta sig, fara í nám með tilheyrandi kostnaði, til að hann eigi þá yfirleitt einhverja möguleika á að afla sér nýrra tekna.

Það er náttúrlega ekki bara um það að ræða að segja sem svo: Ja, einhvern tíma í framtíðinni verður viðkomandi örorkulífeyrisþegi hugsanlega fær um að afla sér einhverra tekna. Slys hans kann að vera með þeim hætti og menntun hans áður en hann slasaðist að hann eigi litla möguleika á því, nema þá að ganga í skóla og mennta sig í allt öðru starfi og til þess þarf auðvitað ákveðna fjármuni og ákveðinn kostnað. Þess vegna finnst mér í mörgum tilfellum að það frádrag sem gert er ráð fyrir þegar fólk verður fyrir örorku — það er auðvitað misjafnt eftir því í hverju örorkan felst, að hún sé ofmetin í þessu frádragi. Mér finnst það ekki nægilega skoðað. Í sumum dæmum sem maður hefur heyrt um þarf viðkomandi örorkulífeyrisþegi að leggja í mikinn kostnað og mikið starf við að afla sér nýrrar menntunar til þess ef til vill að geta aflað sér tekna, það sé ekki nægjanlega metið þegar verið er að meta hvað á að skerða þær skaðabótakröfur sem hann setur fram.