Landbúnaðarstofnun.
Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (andsvar):
Hæstv. forseti. Þetta var frekar stutt og hnitmiðuð framsaga hjá hæstv. ráðherra.
Mig langar að spyrja hæstv. landbúnaðarráðherra að því í andsvari mínu, ef hann getur upplýst það í umræðunni, hve mikið af starfsmönnum hinnar nýju stofnunar muni starfa utan höfuðborgarsvæðisins, þá er ég að tala um Stór-Reykjavíkursvæðið, og hvar þeir verði staðsettir á landinu. Fyrir örskömmu upplifðum við að hæstv. sjávarútvegsráðherra færði eftirlitsstofnunina Fiskistofu út á land að stórum hluta. Ég tel það mjög ánægjulegt og í samræmi við þá stefnumótun sem hefur verið til staðar á undanförnum árum að ráðuneytið skuli almennt leitast við að dreifa verkefnum út um landsbyggðina. Er það vel að það skuli sjást í verki þó okkur landsbyggðarþingmönnum hafi fundist oft lítið að gert á undanförnum árum í þá veru.
Erindi mitt í ræðustól var eingöngu að biðja hæstv. landbúnaðarráðherra að útlista nánar fyrir okkur hversu mörg störf verða úti á landsbyggðinni, hver þau verða og hvort einhverjar hugmyndir séu um hvar þau verði staðsett.