Landbúnaðarstofnun.
Sigurjón Þórðarson (Fl) (andsvar):
Frú forseti. Það er náttúrlega augljóst að ef það á að vera á kjördæmavísu er verið að fækka störfum, fækka héraðsdýralæknum. Það er gott að það hafi komið skýrt fram í máli hæstv. ráðherra og ég er ekki viss um að það falli í frjóan jarðveg á landsbyggðinni.
En vert er að fara yfir aðra þætti. Hæstv. ráðherra hefur unnið ötullega að því að fækka sláturhúsum og gengið mjög hart fram í þeirri baráttu sinni að fækka þeim og störfum á landsbyggðinni. Í framhaldi af því er rétt að spyrja hvort eftirlitsþátturinn sé orðinn það rýr varðandi matvælaeftirlitið hjá héraðsdýralæknum að þess vegna beri að flytja eftirlitið frá yfirdýralækni og þess vegna yfir til sveitarfélaganna, að menn séu ekki að halda sig í þeim kössum að sláturhúsin séu hjá yfirdýralækni í staðinn fyrir að þau séu hjá eftirliti sveitarfélaganna, að það séu ekki mörg eftirlitskerfi að fylgjast með sömu fyrirtækjunum.