Landbúnaðarstofnun.
landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson) (F) (andsvar):
Hæstv. forseti. Það er eins og sumir þingmenn hafi verið kallaðir til þings til að flytja fólk af landsbyggðinni á höfuðborgarsvæðið með ræðum sínum, svartsýni og neikvæðri umræðu. Ég er t.d. að koma af landssambandsþingi sauðfjárbænda. Þar ríkti bjartsýni.
Við verðum að viðurkenna að þó að í ýmsum byggðarlögum séu breytingar í starfsumhverfi á landsbyggðinni, þá ríkir þar eigi að síður á mörgum nýjum sviðum uppgangur og bjartsýni. Þau landsvæði eru færri í dag en voru fyrir fimm árum sem eiga í miklum erfiðleikum.
Við skulum taka uppganginn og bjartsýnina á Austurlandi. Þar ríkir engin deyfð lengur. Við vitum að Skagafjörðurinn með Hóla og Sauðárkrók, svo maður tali nú ekki um bjartsýnina á Siglufirði og Akureyri, og ef maður horfir í gegnum Hvalfjarðargöngin, á Vesturlandið og Snæfellsnesið, að ég fari ekki bara austur í mitt Árnesþing og Rangárþing, þá ríkir þar sóknarhugur. En auðvitað glímum við alltaf við einhver verkefni.
En ég segi, hæstv. forseti: Það er eiginlega sorglegt, mér finnst að sumir þingmenn landsbyggðarinnar hafi tekið það að sér að halda hér ræður til að gera landsbyggðarmenn óánægða og segja þeim að það sé miklu betra hér. Ég hygg að þegar allt er skoðað sé uppgangur mikill á Íslandi og hann nær sem betur fer á ný til margra byggðarlaga.
Svo get ég tekið undir að það er sjálfsagður hlutur og mikilvægt að taka á með þeim byggðarlögum sem eiga í erfiðleikum og það er auðvitað verið að því á vegum ríkisstjórnar með heimamönnum að skapa vaxtarsvæði. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur verið að gera það um allt land sem byggðamálaráðherra (Forseti hringir.) þannig að viljinn er allur sá að efla og styrkja landsbyggðina.