Landbúnaðarstofnun.
Kjartan Ólafsson (S) (andsvar):
Frú forseti. Hv. þm. Magnús Þór Hafsteinsson svaraði ekki þeirri spurningu sem ég lagði fyrir hann sem var á leið hvort hann hefði hugmynd um hve stór hluti af heildarlandbúnaðarframleiðslu landsins væri í Suðurkjördæmi. Ég tel mig vera að vinna að hagsmunum landbúnaðarins þar sem landbúnaðarframleiðslan er, sem er á Suðurlandi. En það er rétt að upplýsa að þar er nálægt 50% af heildarlandbúnaðarframleiðslunni.
Auk þess vil ég benda hv. þingmanni á að Landbúnaðarháskóli Íslands er einungis að hluta til á Hvanneyri. Hann er að hluta til á Reykjum í Ölfusi, sem er Garðyrkjuskólinn. Þar er fagþekkingin sem er þriðja stoðin undir þeirri stofnun sem verið er að ræða hér, Landbúnaðarstofnun, hvað varðar plöntur og plöntusjúkdóma.